Lambahryggur með ólýsanlega góðri himneskri fyllingu
Gestabloggaraleikurinn heldur áfram. Það er komið að Helgu systurdóttur minni sem á dögunum varð Íslandsmeistari í kjötiðn, það lá því beinast við að fá hana til að elda kjöt (en ekki hvað). Helga úrbeinaði lambahrygginn fimlega og bar sig fagmannlega að þessu öllu. Hryggurinn gjörsamlega bráðnaði í munni og þessi fylling, guð minn góður, hún er himnesk.
#2017Gestabloggari14/52 — LAMB — HELGA HERMANNSDÓTTIR —
.
Lambahryggur með ólýsanlega góðri himneskri fyllingu
1 heill lambahryggur úrbeinaður og við stofuhita
Fylling
1 hvítlauksostur
1/2 rjómapiparostur
3 hvítlauksgeirar
góður slatti af ferskri steinselju
2 dl fetaostur
1-2 dl sólþurrkaðir tómatar
2 msk ristaðar furuhnetur
1 tsk rósmarín
salt og pipar
Setjið allt í matvinnsluvél og maukið. Leggið hrygginn úflattann á borð, setjið lundirnar í miðjuna, ostamaukið yfir og lokið honum með því að binda garn utan um hann. Takið frá u.þ.b. 1/3 af fyllingunni og nokkrar furuhnetur til að setja yfir hrygginn.
Í fatið:
rósmarín
Laukur, blaðlaukur og rauðlaukur
salt og pipar
Setjið rósmarín, lauk, salt og pipar á botninn á eldföstu formi. Hellið yfir 1 dl af vatni. Leggið hrygginn ofan á, kryddið með salti, pipar og rósmarín, setjið restina af fyllingunni yfir og stráið furuhnetunum yfir. Bakið við 125°C í um 2 klst. Hækkið hitann í 180° síðustu mínúturnar.
Ostasósan góða
1 piparostur
1 villisveppaostur
nautakjötkraftur
grænmetiskraftur
salt og pipar
soð af hryggnum
Setjið osta, kraftana og krydd í pott og sjóðið á lágum hita. Bætið soði við. Ef sósan er of þykk má þynna hana með rjóma. Smakkið til.
Kramdar og bakaðar kartöflur
10 kartöflur soðnar með hýði
1 dl rjómi
1 dl rifinn ostur
Setjið kartöflurnar í form, kremjið þær aðeins niður, hellið rjóma yfir og rifnum osti. Bakið við 8-10 mín. Síðustu mínúturnar sem hryggurinn er í ofninum
Með lambahryggnum var borið fram Campo Viejo Rioja rauðvín sem passaði afar vel við. Það er milt og ósætt
#2017Gestabloggari14/52 — LAMB — HELGA HERMANNSDÓTTIR —
— ÓLÝSANLEGA GÓÐUR FYLLTUR LAMBAHRYGGUR —