Marokkóskur kjúklingaréttur – meiriháttar góður
Þessi réttur hentar vel í Tagínu. Ef þið eigið ekki slíka græju þá er best að setja í eldfast form og elda í ofni. Eitt af því sem einkennir marokkóskan mat er að fjölmörg krydd eru notuð í sama réttinn og með þeim eitthvað sætt, oftast þurrkaðir ávextir. Í þessari uppskrift eru rúsínur og döðlur.
— MAROKKÓ — KJÚKLINGUR — TAGÍNA — KJÚKLINGABAUNIR —
.
Marokkóskur kjúklingaréttur – meiriháttar góður
ca 500 g kjúklingur í bitum
2 msk olía
2 msk smjör
2 hvítlauksrif, söxuð
salt
1/3 tsk múskat
1/2 tsk kanill
1 tsk engifer
1 tsk kúmín
1 tsk kóríander
1/2 tsk pipar
smá cayennepipar
1 1/2 – 2 ds tómatar í dós
2 ds kjúklingabaunir
1 tsk vanilla
1/3 b rúsínur
1/3 b döðlur, saxaðar gróft
Ferskt kóríander til skrauts.
Setjið olíu og smjör í pott og brúnið kjúklinginn, takið hann til hliðar. Bætið við öllum kryddunum og steikið við lágan hita í nokkrar mínútur. Bætið kjúklingunum saman við ásamt tómötum, kjúklingabaunum (hellið vatninu af þeim og skolið), vanillu, rúsínum og döðlum. Setjið í eldfast mót, álpappír yfir og bakið við 150°C í rúma klst. Stráðið vel af fersku kóríander yfir áður en borið er á borð. Berið fram með hrísgrjónum.
— MAROKKÓ — KJÚKLINGUR — TAGÍNA — KJÚKLINGABAUNIR —
.