
Appelsínukaka
Bogga frænka mín á Núpi bakaði þessa undurgóðu Appelsínuköku og bauð í kaffi. Ömmustelpan hennar Helena Draumey plokkaði kremið ofan af tertunni og borðaði af mikilli áfergju #auðvitaðsegjaömmurekkertþegarbarnabörninborðabarakremiðaftertum
— VILBORG FRIÐRIKSDÓTTIR — BANANABRAUÐ — BRAUÐ — KAFFIMEÐLÆTI— KAFFIBOÐ — BERUFJÖRÐUR — BANANAR — APPELSÍNUKÖKUR –
.
Appelsínukaka
200 g sykur
2 stk egg
1 dl mjólk
100 g smjör
200 g hveiti
1/2 msk lyftiduft
Börkur af einni appelsínu
Krem
300 g suðusúkkulaði
2 msk appelsínusafi
30 g smjör
Sykur og egg þeytt vel saman. Smjörið brætt og sett út í ásamt restinni af hráefnunum.
Sett í 26 cm hringform, bakað við 180° í 35-40 mín. Súkkulaði, smjör og appelsínusafinn brætt saman þar til orðið kekklaust og smurt svo yfir botninn þegar hann er orðinn kaldur.
🍊
— VILBORG FRIÐRIKSDÓTTIR — BANANABRAUÐ — BRAUÐ — KAFFIMEÐLÆTI— KAFFIBOÐ — BERUFJÖRÐUR — BANANAR — APPELSÍNUKÖKUR –
— APPELSÍNUKÖKUR — BOGGUUPPSKRIFTIR—
🍊

🍊
— APPELSÍNUKAKA MEÐ SÚKKULAÐIKREMI —
🍊