Grafin rjúpa, lax, nautasteik og After-Eight-perur í afmælisveislu Kristjáns Guðmundar

Grafin rjúpa, lax, nautasteik og villibráð fuglakjöt After-Eight-perur í afmælisveislu Kristjáns Guðmundar Tvítugsafmæli, Kristján Guðmundur afmæli, grafin rjúpa,
Kristján Guðmundur er fyrir miðri mynd

Afmælisveisla Kristjáns Guðmundar

Heiðurspilturinn Kristján Guðmundur hélt glæsilega upp á tvítugsafmælið sitt, eins og við var að búast. Fyrst voru tveir forréttir, grafinn lax og grafin rjúpa, þá nautasteik með hunangsgljáðum sveppum, rótargrænmeti og sveppasósu og loks After Eigh perur í eftirrétt.

KRISTJÁN GUÐMUNDURBorðsiðanámskeið 101

.

Í hádeginu á afmælisdaginn fórum við Kristján Guðmundur út að borða á Apótekinu og hann fékk borðsiðanámskeið í afmælisgjöf. Hann útskrifaðist með láði

  

Grafin rjúpa með bláberjasultu

3 rjúpur

Úrbeinið rjúpurnar. Bringunar fara í marineringu en beinin er upplagt að frysta til betri tíma og útbúa soð í súpu eða sósu.

Kryddblanda fyrir marineringu:

Hálft glass villkrydd frá pottagöldrum

1 1/2 msk maldon salt

1/2 msk sykur

8-10 einiber grófsöxuð

Blandið öllu saman og þekið bringurnar á báðum hliðum. Vefjið þeim inní plast eða álpapír og látið farg á þær. Látið í ísskáp í 24 klst. snúið á12 tíma fresti

Skerið rjúpurnar niður í þunnar sneiðar og berið fram með teskeið af bláberjasultu.

 

Sítrusgrafinn lax

Annar af tveimur forréttum var sítrusgrafinn lax af hinni ágætu síðu Krydd og krásir. Uppskriftin er hér lítillega breytt.

1 laxaflak u.þ.b. 1 kg.

75 g gróft sjávarsalt

75 g hrásykur

rifinn börkur af 1/2 lime

rifinn börkur af 1/2 sítrónu

rifinn börkur af 1/2 appelsínu

Blandið salti og sykri saman.

Hreinsið og þerrið flakið. Rífið börk beint yfir flakið, en það má að sálfsögðu blanda berkinum saman við salt og sykurblönduna. Stráið salt og sykurblöndunni yfir allt flakið þannig að blandan þeki allt flakið vel.

Eftir sólahring er flakið tekið úr kæli og hreinsað og þerrað vel. Grafinn lax er unnt að geyma í kæli í allt að 2 vikur, en þessi var svo góður að hann var löngu búin áður en sá tími kom 🙂

Nautasteik í Sous Vide

5.5 kg nautalundir

pipar

smjör + olía

1 dl saxað ferskt rósmarín

Sous Vide

gróft salt.

Látið nautalundina  meirna í ísskáp til 5 daga til viðbótar við það sem var fyrir var. Stráið á hana grófum pipar og setjið nokkrar smjörklípur. Vacumpakkið, setjið pokann í vatn og stillið Sous vide tækið á 53.5°C Látið eldast þannig í 21/2 til 3 tíma. Setjið smjör og olíu á pönnu og hitið vel, bætið við rósmaríni. Steikið kjötið á öllum hliðum. Setjið kjötið á fat og glóððið með brennara. Stráið grófu salti yfir og látið hvíla meðan sósan var gerð. (10mín)

Hunangsgljáðir sveppir

Hunangsgljáðir sveppir

Hvítir sveppir ca. 3-4 á mann

smjör

salt og pipar

hunang

Sterkt áfengi, t.d. gin

Skerið neðri hlutann af stilknum á svepponum Setjið smjörið á pönnunna og steikið þar til mesta vatnið er gufað upp, saltið og piprið. Setjið svo einn dropa af hunangi hvor meginn á sveppina og steikið og veltir þeim vel á pönnunni. Hellið sterku áfengi yfir og kveikið í. Ég setti gin því það var það eina sem ég átti. Var með sveppina í 15-20min á pönnunni
Má vera í minni tíma bara þannig að þeir séu vel brúnir áður en þú karmelar þá

Sveppaósa

1 msk smjör eða rúmlega það

Stilkarnir af sveppunum

4 dl vatn

2 teningar af kjötkrafti

salt og pipar

1 ds Villisveppaostur

1/2 l rjómi

Notið pönnuna sem nautið var steikt á(ekki þrífa hana), setjið smjör á og steikið stilkana af sveppunum. Bætið við vatni útá og sjóðið. Setjið nautakraft, salt og pipar saman við.  Skerið villisveppaost í bita og setjið á pönnuna. Bætið loks við rjóma og sjóðið í 5 mín, maukið með töfrasprota.

Rótargrænmeti bakað í ofni

Rótargrænmeti bakað í ofni

1,5 kg sellerírót

1,5 kg ferskar rauðrófur

1,5 kg gulrætur

3-4 msk ólífuolía

salt og pipar

1 tsk rósmarín.

Skerið allt í ílanga ferhyrninga ca jafnstóra. Raðið í ofnskúffu, dreifið ólifuolíu yfir og kryddið með rósmarín, salt og pipar. Hitið ofninn í 200°C og bakið í 50 mín hrærið einu sinni á eldunartímanum. Það getur verið kostur að baka rauðrófurnar sér til að liturinn fari ekki á hitt grænmetið

Döðlumauk með steikinni

800 g döðlur

4-5 dl vatn

1-2 dl viský

salt og pipar

Sett í pott og soðið í mauk gæti þurft meira vatn á að vera þykkt muna að hræra vel í
Saltið og piprið eftir smekk og sjóðið í 20 mín.
Takið af eldavélinni og látið kólna aðeins áður en viskýinu er hrært saman við

After Eight perur
After Eight perur

After Eight perur

2 heildósir niðursoðnar perur

1 pk After Eight

Hellið safanum af perunum, raðið þeim á disk með skurðarhliðina upp. Setjið eina súkkulaðiplötu ofan á hverja peru og bræðið með gasbrennara. Berið fram með vanilluís.

KRISTJÁN GUÐMUNDURBorðsiðanámskeið 101

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.