Kvöldkaffi hjá kvenfélagskonum í Flóanum
Starf kvenfélaga víða um land stendur í miklum blóma. Konurnar leggja á sig mikla vinnu, safna peningum sem síðan renna til góðra málefna, auk þess sem félagsskapurinn eykur samheldni og styrkir einstaklingana, sem oft springa út sem áhrifavaldar í samfélaginu. Í vikunni var okkur boðið að spjalla við kvenfélagskonur í Flóanum og að sjálfsögðu svignuðu borðin af dásamlegu góðgæti.. Kvenfélög Hraungerðishrepps, Villingaholtshrepps og Gaulverjabæjarhrepps halda saman árlega kvöldvöku á vorin. Mikið á vel við mig að vera boðinn í kaffisamsæti þar sem veisluborðið er hlaðið að heimagerðu bakkelsi og hitta skemmtilegt fólk!
Dásamlega góð Pipp ostakaka
Botn:
250 g hafrasúkkulaðikex
150 g smjör
Ostafylling:
2 stk egg
150 g flórsykur
400 g rjómaostur
3 dl rjómi
200 g Pippsúkkulaði
4 blöð matar
Botn:
Myljið niður hafrasúkkulaðikexið, bræðið smjörið, hrærið vel saman. Þrýstið í botninnn á 22-24 cm springformi.
Ostafylling:
Byrjið á að þeyta 2 ½ dl rjóma og setjið til hliðar. Þar næst þeytið egg og sykur vel saman, bætið í rjómaostinum og hrærið vel saman. Bætið loks í þeyttum rjóma. Setjið matarlímið í bleyti í kalt vatn. Bræðið Pippsúkkulaði og ½ dl af rjómanum. Kreistið vatnið af matarlímsblöðunum og bræðið í pippblöndunni. Blandið örlítið af rjómaostablöndunni saman við súkkulaðið og hellið svo restinni af ostablöndunni saman við. Hrærið vel saman. Setjið í springformið og kælið vel.
Berglind kom með uppskrift að þessari dásamlegu hjónabandssælu sem hún er bùin að þróa í gegnum tíđina. „Hana má gera á marga vegu og hún er aldrei eins hjá mèr þegar èg baka hana því èg leik mèr ađ því ađ breyta til. Stundum vil eg hafa hana ađeins “hollari” og stundum ekki. Njótið.” Kveđja frá Berglindi
Hin eina sanna Hjónabandssæla
200 g haframjöl
200 g hveiti (venjulegt/spelt)
200 g púðursykur/hrá
sykur
1 tsk natron
* Blandađ saman ì skál
1 (hamingjusamt) egg 😊
225 g lint/hart smjör/lLjóma
Blandið þurrefnunum saman og bætið eggi og smjöri út í. Hrærið í hrærivél þangađ til deigiđ er orđiđ vel blandađ og þètt.
Veljiđ svo fallegt form og þrýstiđ deiginu ofan í. Smekksatriði ađ hafa kant allan hringinn. Geymið smá deig til ađ dreifa yfir á eftir.
150 g Rabarbarasulta (best sù heimagerða) smurð yfir botninn. Ég hef alltaf allvel af henni. Dreifið svo afganginum af deiginu yfir sultuna.
Bakið við 175°C í 45 mín.
Verði ykkur ađ góđu
Tendapabbi kom með okkur og hitti sveitunga sinn úr Hvítársíðunni. Sigríði Gísladóttur, Stellu. Þau eru bæði eldhress, annað á níræðisaldri og hitt á tíræðisaldri. Páll setti inn á fasbókarsíðu sína:
Þessa konu sá ég síðast fyrir 76 árum, Sigríði Gísladóttur. Þá var hún 11 ára og hafði búið á næsta bæ, en var að flytja suður og varð seinna 10 barna móðir. Amma hennar hélt ótrúlega mikið upp á mig, og á afmæli hennar löngu áður fékk ég pabba til að senda henni vísu:
Þú ert, gamla Guðný mín,
góð við litla drengi.
Óska ég að ellin þín
endist vel og lengi.