Berunes í Berufirði
Persónuleg þjónusta og natni í einu og öllu er einkennandi fyrir ferðaþjónustuna á Berunesi í Berufirði. Hjónin Ólafur og Anna hafa byggt upp starfsemina og staðið vaktina í á fimmta áratug. Ólafur er sannkallaður völundur og bera hús á Berunesi og allt umhverfi þeim hjónum fagurt vitni.
— BERUFJÖRÐUR — FISKISÚPUR — RABARBARADRYKKUR — RABARBARAPÆ — HAFRAGRAUTUR — GERBOLLUR —
.
Við borðuðum bragðmikla og góða fiskisúpu sem innihélt nokkrar tegundir af fiski, hrogn og allskonar grænmeti. Með súpunni voru þrjár tegundir af heimabökuðum ljúffengum bollum, sem voru stökkar að utan og mjúkar að innan. Á borðinu við hliðina á okkur voru dönsk hjón alveg yfir sig ánægð með súpuna (eins og við) og gáfu henni „fimm kokkahúfur” – fullt hús.
Sigríður dóttir Önnu og Ólafs gekk um beina og spjallaði við gesti á ýmsum tungumálum af hlýleik og virðingu. Steinn stóð vaktina í eldhúsinu og aðstoðaði við að bera matinn á borðið. Ég reyndi að beita öllum brögðum til að fá uppskrift að súpunni góðu en það var tómt mál að tala um.
—
— BERUFJÖRÐUR — FISKISÚPUR — RABARBARADRYKKUR — RABARBARAPÆ — HAFRAGRAUTUR — GERBOLLUR —
—