Pasta/kjúklingasalat
Mörgum saumaklúbbum landsins hefur verið legið á hálsi fyrir að standa ekki undir nafni. Það á ekki við um þennan saumaklúbbnum eru sex konur frá Fáskrúðsfirði. Þær hittast a.m.k. einu sinni í mánuði, sinna handavinnunni af miklum móð í dágóða stund áður en þær setjast til borðs og njóta veitinga þeirrar sem býður heim í það skiptið. Eins og siður er í góðum saumaklúbbum var margt saumað og prjónað í vetur en einnig kynntust þær silfursmíði og smíðuðu sér allar hálsmen. Klúbburinn var stofnaður fyrir nokkrum árum þegar þær störfuðu allar við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar. Það er afar létt yfir hópnum, mikið talað og mikið hlegið. Þær segjast vera duglegar að prófa nýja rétti og tertur eru í sérstöku uppáhaldi.
.
— SALÖT — FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR — SAUMAKLÚBBAR — KJÚKLINGUR —
.
Pasta/kjúklingasalat
400 g pasta
100 g klettasalat
2-3 kjúklingabringur
1 dl sólblómafræ olivuolía
Salt og pipar
Sjóðið pasta eins og stendur á umbúðum. Skerið bringurnar í strimla og kryddið með salti og pipar, steikið svo á pönnu upp úr olivuolíu. Ristið sólblómafræ upp úr olivuolíu á pönnu þar til þau hafa fengið á sig fallegan lit. Blandið öllu saman í stóra og víða skál.
sósa
4 msk. sólþurrkaðir tómatar
1 tsk. basililku lauf
2 tsk. steinselja
1 dl ólivuolía
2 msk. balsamic edik
1 tsk. hlynsýróp.
Setjið þetta allt í blandara eða matvinnsluvél og berið fram með pastasalatinu. Gott er að hafa brauð með ef maður vill
.
— SALÖT — FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR — SAUMAKLÚBBAR — KJÚKLINGUR —
.