
🍌
— BANANABRAUÐ — BREIÐDALUR — BANANAR —
🍌
Bananabrauðið á Þorgrímsstöðum
1 b smjör
2/3 b púðursykur
3 egg
4-5 bananar, vel þroskaðir og stappaðir með gaffli
1 1/2 b spelt
1 b gróft haframjöl
1 1/2 b pekanhnetur, saxaðar gróft
1 msk kókosflögur
1 tsk matarsódi
1/2 tsk salt eða rúmlega það
1/2 tsk vanillukorn
Þeytið saman smjör og púðursykur.
Blandið eggjum og stöppuðum banönum við smjör og sykurblönduna.
Blandið saman þurrefnum og bætið þeim saman við eggja-, smjör-, sykur og bananablönduna.
Bætið loks pekanhnetum og kókosflögum út í deigið.
Setjið í tvö brauðform (lítil) sem búið er að smyrja. Bakið við 175°C í um 55 mín. Berið fram með smjöri og osti.
🍌
— BANANABRAUÐ — BREIÐDALUR — BANANA —
— BANANABRAUÐIÐ Á ÞORGRÍMSSTÖÐUM —
🍌
