Að ýmsu er að hyggja þegar matarboð er undirbúið

Matarboð undirbúið. gestgjafi table manners borðskraut  franska sendiráðið hver á að sitja hvar sætaskipan Að ýmsu er að hyggja áður en matargesti ber að garði. Þuríður Sigurðardóttir Það er augnayndi að sjá fallega lagt á borð og gott er að gefa sér góðan tíma í að undirbúa borðið, jafnvel daginn áður, skipuleggja og koma öllu haganlega fyrir. Eins og venjulega þarf að meta tilefnið og umfangið. Þegar mikið stendur til notum við spariborðbúnaðinn. hnífapör vínglös lagt á borð leggja fallega á borð servíettur kurteisi borðsiðir etiquette
Að ýmsu er að hyggja áður en matargesti ber að garði

Matarboð undirbúið. 

Að ýmsu er að hyggja áður en matargesti ber að garði. Það er augnayndi að sjá fallega lagt á borð og gott er að gefa sér góðan tíma í að undirbúa borðið, jafnvel daginn áður, skipuleggja og koma öllu haganlega fyrir. Eins og venjulega þarf að meta tilefnið og umfangið. Þegar mikið stendur til notum við spariborðbúnaðinn.

KURTEISI/BORÐSIÐIRSERVÍETTURUM NOTKUN Á MUNNÞURRKUM — SERVÍETTUBROT —- UPPÞVOTTAVÉLARHNÍFAPÖR

.

Lagt á borðið

Ef léttvínsglösin og sparidiskarnir hafa ekki verið notaðir lengi er um að gera að renna þeim í gegnum uppþvottavélina á hraðprógrammi og pússa að því loknu með hreinu stykki.
Brún matardisksins á að vera rétt fyrir innan brún borðsins, servíettan kemur ofan á matardiskinn, gaffall vinstra megin við diskinn og hnífur hægra megin, hvort tveggja í sömu fjarlægð frá brúninni og matardiskurinn. Eftirréttaráhöldin, gaffall og skeið, fyrir ofan diskinn. Skeiðin fyrir ofan gaffalinn og hald gaffalsins snýr í áttina að aðalréttagafflinum en hald skeiðarinar í áttina að hnífnum. Súpuskeið kemur svo hægra megin við hnífinn. Glösin í boga eða í línu, eftir smekk, fyrir ofan hægra megin. Fyrsta vínglas skal sett beint fyrir ofan aðalréttahnífinn og vatnsglasið hægra megin við það.

Hver er hvar

Það er ágætt að ákveða sætaskipan, hver situr hvar, með því að skrifa nafn gestanna á miða og stilla upp, t.d. fyrir ofan gaffla . Oft er þægilegt að gestgjafar séu við enda borðsins. Best fer á að hjón sitji ekki langt frá hvort öðru, en á móti hvort öðru á ská getur brotið skemmtilega upp. Ef því verður viðkomið er gott að hafa karla og konur til skiptis. Í mjög formlegum boðum er sá háttur hafður á að heiðursgesturinn er húsbóndanum á hægri hönd, sé um konu að ræða, en á hægri hönd húsfreyjunnar ef um karl er að ræða. Hér er líka hugmynd að sætaskipan.

Borðskreyting og kerti í matarboði veislu veisla

Borðskreyting og kerti

Falleg blómaskreyting setur alltaf punktinn yfir i-ið. Passa þarf að hún sé ekki of há til að skyggja ekki á gesti, oft er miðað við 20 cm. Sama á við um kertastjaka, margarma stjakar taka mikið pláss og skyggja á. Hafa verður í huga að matarföt, skálar og annað slíkt tekur pláss á borðinu. Til að gera sér grein fyrir plássinu er gott að leggja þetta stutta stund tómt á borðið eftir að búið er að leggja matardiskana, áhöldin og glösin á, áður en gestirnir koma.

Munnþurkur

Þó margir telji servíetturnar sé mest upp á punt eru þær þó mikilvægar sérstaklega ef slys verður. Með aðstoð netsins má finna fjölmörg servíettubrot og gott er að æfa sig í þeim tímanlega. Einfaldast er að hafa sama brotið fyrir alla gestina, en það getur verið skemmtilegt uppbrot að hafa tvö servíettubrot og nota þau til skiptis.

SERVÍETTURUM NOTKUN Á MUNNÞURRKUM — SERVÍETTUBROT

Létt stemning

Létt stemning og notalegt andrúmsloft er það mikilvægasta af öllu í matarboði þegar upp er staðið. Það þarf að gæta þess að allir fái að njóta sín og að umræðuefni í matarboðinu séu ekki einsleit. Það á hér við eins og svo oft áður að æfingin skapar meistarann. Okkur verða á mistök, en af þeim má læra. Það er sjálfsögð kurteisi við gestgjafa og aðra veislugesti að fólk haldi uppi skemmtilegum samræðum yfir borðhaldinu. Getur verið gagnlegt að lesa um ísbrjóta.

Nokkur atriði matarboð veisla góða veislu gjöra skal lagt á borð
Glæsilegt matarboð hjá Þuríði Sigurðar

Nokkur atriði:
-Bjóða gesti velkomna þannig að þeim líði vel strax frá fyrstu mínútu. Ef hjón bjóða heim taka þau bæði á móti gestum.
-Leggja dúkinn á borðið deginum áður svo „hann taki sig.”
-Hafa blómavasa til reiðu, e.t.v. koma gestir með blóm með sér. Sumir senda þau á undan sér.
-Velja ljúfa viðeigandi tónlist og gæta þess að hún sé ekki of hátt stillt.
-Velja borðvín af kostgæfni og huga að hitastigi vínanna.
-Hafa notalegt á snyrtingunni, næga sápu, handklæði og pappír, e.t.v. kerti.
-Prenta út söngtexta eða annað sem á að nota í leikjum.
-Varast eldfim málefni og sjúkrasögur í boðinu.
-Gestgjafar skipta með sér verkum, svo að allt gangi fumlaust fyrir sig.
-Víða erlendis þykir sjálfsagt að senda lítið þakkarkort eftir kvöldverðarboð. Hér á landi þakka margir fyrir sig með símtali daginn eftir, sms-i eða með skilaboðum á fasbókinni.

súpuskeið forréttargaffall hníur aðalréttargaffall brauðhnífur hnífapör brauðdiskur smjördiskur desertgaffall desertskeið hvítvínsglas vatnsglas salt pipar
Þessi fína mynd birtist á síðu Franska sendiráðsins á Íslandi.

KURTEISI/BORÐSIÐIRSERVÍETTURUM NOTKUN Á MUNNÞURRKUM — SERVÍETTUBROT —- UPPÞVOTTAVÉLARHNÍFAPÖR

— AÐ ÝMSU ER AÐ HYGGJA ÞEGAR MATARBOÐ ER UNDIRBÚIÐ –

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.