Í fjölmörg ár höfum við hjónin farið og dæmt smákökusamkeppni hjá Íslensku lögfræðistofunni. Þetta hefur alltaf verið einstaklega metnaðarfull keppni og mikill undirbúningur hjá starfsfólkinu. Árlega tökum við með okkur gestadómara. Dagana fyrir keppnina fær starfsfólkið vísbendingar um gestadómarann, eina vísbendingu á dag, og svo eiga þau að finna út hver hann er. Á hverju einasta ári hafa þau lesið okkur og okkar vísbendingar eins og opna bók. Þannig að í ár ákváðum við að hafa þær mun þyngri en áður.
Í fyrra fengum við Kristján Jóhannsson með okkur að dæma. Hér eru vinningskökur síðustu ára: – 2014 Appelsínublúndur – 2015 Appelsínunibblur – 2016 Kókosdraumur –2017 Pekansmákökur –
Og hér fyrir neðan má sjá vísbendingarnar um gestadómarann 2018. Viljið þið hjálpa okkur að halda stemningunni með því að skrifa ekki hver þið haldið að gestadómarinn sé. Það kemur í ljós seinnipartinn í dag þegar við dæmum