Lárperur – þrjár tegundir af avókadó
Lárperur eða avókadó eru hið mesta góðgæti, hollar og ljúffengar. Á markaðnum eru núna aðallega þrjár tegundir af avókadó en til eru mun fleiri tegundir. Það er ágætt húsráð að kaupa hart avókadó, láta það þroskast við stofuhita þangað til það byrjar aðeins að mýkjast og segja þá í ísskápinn. Þroskinn heldur áfram í ísskápnum.
— AVÓKADÓ —
.
Hass lárperunar eru vinsælastar í heiminum. Miðlungsstórar með þykkri dimmgrænni húð sem verður dökkfjólublá þegar lárperurnar þroskast. Kjötið er rjómakennt og mjúkt.
Fuerte eru lengri og þynnri en Hass lárperur. Fuerte er með mjúka húð sem auðvelt er að fletta af þegar lárperan er þroskuð. Kjötið er ljósara á lit en á Hass lárperum en álíka rjómakennt.
Pinkerton eru stærstu lárperurnar, ekki mjög algengar í búðum hér. Húðin á þeim er þunn og ljósari en á Hass lárperum en lögunin er svipuð og á Fuerte en kjötið er enn rjómakenndara.
Það koma upp fjölmargar spennandi avókadóuppskriftir á alberteldar
Nokkrar hugmyndir:
–Bústið. Við að setja lárperu í bústið fær það rjómakennda áferð.
–Súkkulaðibúðingur. Já hljómar kannski undarlega. Endilega prófið
–Hráfæði. Lárperur henta vel í hrátertur
–Fyllt lárpera. Hentar vel til fyllingar. Salat gert úr lárperum í bitum, krabbakjöti, chili og sinnepi. Blandið saman og fyllið. Saxið sólþurrkaða tómata, ólífur og vorlauk og stráið yfir salatið.
–Súkkulaðiterta, já það kannski hljómar einkennilega að lárperurnar hollu og góðu er hægt að nota í súkkulaðitertu.
— AVÓKADÓ —
.