Hreindýra- Carpaccio
Helga æskuvinkona mín frá Kolfreyjustað og Bogi hennar maður héldu MATARBOÐ þar sem hreindýracarpaccio var í forrétt.
— HREINDÝR — KOLFREYJUSTAÐUR — ÞÓRHILDUR HELGA — CARPACCIO —
.
Hreindýra- Carpaccio
Hreindýrakjöt
Ólífuolía
Flögusalt
Svartur pipar
Klettasalat
Ristaðar furuhnetur
Parmasanostur
Balsamsýróp
Góður vöðvi- þerraður, ólífuolía pensluð á- flögusalt og nýmalaður svartur pipar nuddað á vöðvann. Pakkað þétt inn í plastfilmu. Gott að láta standa í sólarhring og setja síðan í frysti.
Tekið úr frysti þann dag sem skal etast. Þegar vöðvinn er hálfþiðinn er hann skorinn í örþunnar sneiðar. Þeim raðað á disk, klettasalat sett ofaná, ristaðar furuhnetur og gróft rifinn parmasenostur. Balsamsýrópi driplað yfir.
— HREINDÝR — KOLFREYJUSTAÐUR — ÞÓRHILDUR HELGA — CARPACCIO —