Fræhrökkbrauð

Fræhrökkbrauð jóhanna þórhalls jóhanna v þórhallsdóttir JÓHANNA ÞÓRHALLSDÓTTIR JÓHANNA ÞÓRHALLS hrökkkex fræ frækex kexkökur
Fræhrökkbrauð

Fræhrökkbrauð

Það verður nú að segjast eins og er að Jóhanna V. Þórhallsdóttir er hamhleypa í eldhúsinu.

FRÆKEXJÓHANNA ÞÓRHALLS

.

Fræhrökkbrauð

1 dl sólblómafræ
1 dl sesamfræ
1,5 dl hörfræ
1 dl graskersfræ
1 tsk salt
2dl gróft eða fínt spelt
1 dl ólífuolía
3 dl sjóðandi vatn

Blandið fræjunum saman, salti og spelti blandað vel saman. Hellið olíu og sjóðandi vatni yfir og hrærið saman. Þetta á að vera eins og hafragrautur. Hellið á bökunarpappírsklædda ofnskúffu og breiðið þunnt út. Stráið maldonsalti yfir. Bakið við 150°C í 45 mín. Slökkvið á ofninum og látið standa í 15 mínútur í ofninum. Takið úr og látið kólna. Brjótið í bita.

JÓHANNA V.HRÖKKKEX

.

Jóhanna Þórhalls og Albert

JÓHANNA V.HRÖKKKEX

— FRÆHRÖKKKEX JÓHÖNNU —

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Sítrónumatarboð hjá Sigurlaugu Margréti

Sigurlaug Margrét Jónasdóttir er gestgjafi af guðs náð. Ekki aðeins er hún snilldarkokkur, heldur verður andrúmsloftið létt og frjálslegt í kringum hana, þar sem allt virðist auðvelt og flest verður tilefni húmors og gjallandi hláturs.

Leiðir okkar Sigurlaugar lágu fyrst saman í geysivinsælum matarþætti, sem hún annaðist í útvarpinu. Hún hefur áður komið við sögu hér á síðunni, en við skrifuðum niður KJÚKLINGARÉTT, sem hún sagði frá í útvarpsþætti fyrir margt löngu.