Ástarpungar
Jóhanna Linnet söngkona er ekki bara vel þekkt fyrir glæsileika og fagran söng, hún gerir um það bil þá bestu ástarpunga sem sögur fara af.
.
— KLEINUR — KAFFIMEÐLÆTI — ÍSLENSKT —
.
Ástarpungar
2 egg
75 g sykur
400 g hveiti
3 tsk lyftiduft
2 dl mjólk
100 g rúsínur
1 tsk kardimommudropar
(sítrónudropar)
Hrærið vel saman egg og sykur í hrærivél.
Bætið við hveiti, lyftidufti, mjólk, rúsínum, kardimommum og dropum og hrærið áfram
Setjið olíu í pott og hitið (ég steiki í Palmín olíu á spanhellu og stilli hitann á 6 sem er passlegur hiti). Mótið með tveimur teskeiðum og setjið beint í pottinn. Uppskriftin gefur ca 30. stk.
.
— KLEINUR — KAFFIMEÐLÆTI — ÍSLENSKT —
—