Ástarpungar

Jóhanna G. Linnet söngkona ástarpungar palmín palmin pungar love balls steiktir ástarpungar rúsínur
Jóhanna G. Linnet með kaffi og nýsteikta ástarpunga

Ástarpungar

Jóhanna Linnet söngkona er ekki bara vel þekkt fyrir glæsileika og fagran söng, hún gerir um það bil þá bestu ástarpunga sem sögur fara af.

.

KLEINURKAFFIMEÐLÆTIÍSLENSKT

.

Ástarpungar

Ástarpungar

2 egg
75 g sykur
400 g hveiti
3 tsk lyftiduft
2 dl mjólk
100 g rúsínur
1 tsk kardimommudropar
(sítrónudropar)

Hrærið vel saman egg og sykur í hrærivél.
Bætið við hveiti, lyftidufti, mjólk, rúsínum, kardimommum og dropum og hrærið áfram

Setjið olíu í pott og hitið (ég steiki í Palmín olíu á spanhellu og stilli hitann á 6 sem er passlegur hiti). Mótið með tveimur teskeiðum og setjið beint í pottinn. Uppskriftin gefur ca 30. stk.

Ástarpungauppskrift Jóhönnu

.

KLEINURKAFFIMEÐLÆTIÍSLENSKT

— ÁSTARPUNGARNIR GÓÐU —

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.