Jóhann Karl Spánarkonungur – Hið íslenska Royalistafélag
Ragnheiður Elín, Svanhvít, Albert, Vilborg og Ragnheiður Ásta. Myndin í rammanum á borðinu er að Jóhanni Karli fyrrverandi konungi
Jóhann Karl Spánarkonungur
Hið íslenska Royalistafélag hittist og ræddi málefni Jóhanns Karls Spánarkonungs (sjá neðst) sem nýlega ákvað að fara í sjálfskipaða útlegð frá Spáni. Hann fæddist 5 janúar 1938 í Róm, skírður Juan Carlos Alfonso Victor Maria de Borbon y Borbon.
Hann er sonarsonur síðasta konungs Spánar fyrir valdatöku Francos einræðisherra.
Jóhann Karl og Soffía giftu sig í Aþenu í maí 1962. Þau eru bæði afkomendur Viktoríu drottningar.
Eiginkona Jóhanns Karls er hin gríska Soffía prinsessa sem er dóttir Pauls fyrrum konung Grikklands og Fredericu drottningar. Bróðir hennar var var Konstantín fyrrum konungur Grikklands. Jóhann Karl og Soffía giftu sig í Aþenu í maí 1962. Viðstaddir voru 137 konungar og drottningar víðsvegar að úr heiminum. Þau fóru í brúðkaupsferð til Bandaríkjanna þar sem þau hittu Kennedy forseta. Krýning Jóhanns Karls fór fram tveimur dögum eftir andlát Franco og spænska konungdæmið var þar með endurreist eftir 44 ára einræði.
Palacio Real de Madrid, konungshöllin í Madríd er notuð við formlega viðburði eins og heimsóknir frá þjóðhöfðingjum.
Ingrid Sartiau og hinn meinti faðir hennar Spánarkonungur
Árið 2015 kom fram belgísk kona og segir að Jóhann Karl sé faðir sinn. Ingrid Sartiau, frá Brussel, fullyrðir að móðir hennar og Jóhann Karl hafi átt í sambandi seint á árinu 1965 og hún fæddist fyrir vikið í ágúst 1966. Á þeim tíma var Jóhann Karl giftur en samt prins. Málinu var vísað frá í Hæstarétti.
Díana prinsessa og Jóhann Karl
Sagt er að Soffía hafi komið að eiginmanninum með leikkonu nokkrum mánuðum eftir giftingu þeirra. Hún brást skiljanlega ekki vel við. Jóhann Karl er óseðjandi kvennamaður og gerðist til dæmis ítrekað nærgöngull við Díönu prinsessu þegar hún var í sumarleyfi á Spáni árið 1986 ásamt eiginmanni sínum og syni. Díana sagðist kunna vel við konunginn, en sagði óþægilegt hversu mjög hann hefði lagt sig eftir því að snerta hana. (DV.sept.2017)
Núverandi konungur Spánar, Filippus fæddist í Madrid 30. janúar 1968, yngsta barn Jóhanns Karls og Soffíu en fyrir áttu þau dæturnar Elenu (1963) and Cristínu (1965). Fillippus prins og Letizia Ortiz gengu í hjónaband sumarið 2004 en hún starfaði áður sem fréttaþula á spænsku ríkissjónvarpsstöðinni TVE en vann áður á blaðamennskuferli sínum fyrir dagblaðið ABC og sjónvarpsstöðina CNN plus. Hún gekk að eiga einn fyrrverandi kennara sinna árið 1999 en skildi ári síðar. En þetta er í fyrsta sinn sem kona af almúgaættum tekur við krúnunni á Spáni. Þau eiga tvær dætur Leonor, sem er fædd 2005 og Sofiu sem er fædd 2007.
Hið íslenska Royalistafélag 16. ágúst 2020:
Meðal þess sem rætt var á fundinum:
– Hjákonur Jóhanns Karls og aldur þeirra.
– Fílaveiðar fyrrverandi Spánarkonungs í Botswana sem vakti mikila reiði heima fyrir
– Léttir fyrir Filippus konung að losna við pabba sinn úr landi – „landhreinsun”.
– Harrý og Meghan voru lítillega rædd „Harrý búinn að týna sjálfum sér”
– Lýtaaðgerðir evrópskra drottninga mikið ræddar, sumar hafa aðeins gleymt sér hjá lýtalæknum.
– Mikil ánægja með Önnu prinsessu í Englandi sem varð sjötug í gær, hún er sú fyrsta úr ensku konungsfjölskyldunni til að keppa á ólympíuleikum. Allnokkrir konungsfjölskyldumeðlimir um víða veröld hafa keppt á ólympíuleikum.
– Innsetning forseta Íslands, klæðaburður forsetahjónanna og annarra gesta, hár þeirra og förðun. Fundarfólk sammála um að forsetahjónin ættu að halda í hefðina með klæðaburð í innsetningu. Sumir söknuðu þess að þau færu ekki út á svalir Alþingis.
— Útbúa síðu á Facebook til að deila fréttum af konungsfjölskyldum
Svanakjúklingur Svanhvítar „Þessa kjúklingauppskrift fékk ég í Riga í Lettlandi árið 1995 úr uppskriftabók sem við gerðum í alþjóðlega kvennaklúbbnum þar. Enn ég er búin að breyta henni, en grunnurinn er úr bókinni. Ég geri þetta frekar oft þegar mér finnst eitthvað gott enn það vantar eitthvað. Mikið er ég ánægð að fá að vera einn af 52 gestum á blogginu á árinu. Ég ákvað að elda þennan rétt af því að þetta er svo ekta "comfort food" sem hentar svo vel á vetrarmánuðum." segir Svanhvít sem hélt matarboð ásamt Peter manni sínum í Brussel þar sem þau búa. Einnig var boðið upp á Grænan aspas vafinn hráskinkuog Einfaldan og góðan eftirrétt