STÓR brauðterta
Áður en stór brauðterta er útbúin þarf að huga að því hvort sé nægilegt pláss í ísskápnum 😉 Best er að setja á brauðtertuna daginn áður og skreyta stuttu áður en hún er borin á borð. Tertan á myndinni er gerð úr fimm brauðtertubrauðum, þessum upprúlluðu. Þeim er rúllað út og salat sett á milli. Í fimm laga tertu þarf um tvo og hálfan lítra af salati og áætla má að hún sé amk fyrir 35 manns (með öðru kaffimeðlæti).
.
— BRAUÐTERTUR — SALÖT — KAFFIMEÐLÆTI —
.
.
— BRAUÐTERTUR — SALÖT — KAFFIMEÐLÆTI —
.