Smákökusamkeppni Kornax 2022 – verðlaunasmákökurnar

Valdís María Guðmundsdóttir Carola Ida Kölhler Linda Björk Markúsdóttir Þóra Þorgeirsdóttir Smákökusamkeppni Kornax smákökur Helga Beck jólasmákökur Markús hauksson, Albert, Rannveig vilbergsdóttir og Elenora Rós Dómnefndina skipuðu auk mín Þóra Þorgeirsdóttir sigurvegari keppninnar árið 2021, Helga Beck frá Nóa Sírius, Markús Hauksson frá Kornax og Elenora Rós bakari
Dómnefndina skipuðu auk mín Þóra Þorgeirsdóttir sigurvegari keppninnar árið 2021, Helga Beck frá Nóa Sírius, Markús Hauksson frá Kornax og Elenora Rós bakari

Smákökusamkeppni Kornax – verðlaunasmákökurnar 2022

Það er árlegur heiður að fá að dæma í smákökusamkeppni Kornax. Dómnefndin smakkað tæplega tvöhundruð smákökur sem voru hver annarri betri.

JÓLINSMÁKÖKURSMÁKÖKUSAMKEPPNI KORNAXCAROLA LEMON CURD

.

Dómnefndin að störfum, Markús, Albert, Rannveig og Elenora Rós
Vel á annað hundrað smákökur bárust í ár og var dómnefndinni mikill vandi á höndum.
1. sæti. Bestu boltarnir, höfundur Linda Björk Markúsdóttir

Bestu boltarnir

Kökur
170 g smjör við stofuhita
150 g sykur
150 g púðursykur
1 tsk. vanilludropar
1 egg + eggjarauða
250 g Kornax hveiti
2 teskeið matarsódi
½ teskeið salt
100 g hvítir súkkulaðidropar frá Nóa Síríus
150 g mjólkursúkkulaðidropar frá Nóa Síríus

Krem
50 g smjör
100 ml rjómi
200 g Besta settið frá Nóa Síríus
100 g flórsykur

Skraut
50 g hvítir súkkulaðidropar frá Nóa Síríus (restin af pokanum)

Kveikið á ofni og stillið á 180 gráður með blæstri
Smjör þeytt þar til orðið alveg létt og loftkennt
Bætð sykri, púðursykri, vanilldropum og eggjum út í hrærivélina og þeytið vel saman og losið reglulega frá hliðum og botni skálarinnar
Blandið öllum þurrefnum vel saman í aðra skál og setjið út í blönduna. Hrærið saman við en passið að byrja rólega til að forðast hveitiský.
Takið súkkulaðidropa og saxið létt yfir til að minnka þá örlítið og bætið út í blönduna og hrærið. Losið vel frá hliðum.
Mótið litlar kúlur úr deiginu en hafið í huga að kökurnar stækka við bakstur. Setjið kúlurnar á ofnplötu klædda bökunarpappír og ýtið létt ofan á þær.
Bakið í 8 mínútur á 180 gráðum með blæstri í ca. 8 mínútur. Ofnar geta verið misjafnir svo fylgist með kökunum.
Meðan kökurnar bakast og kólna útbúið kremið
Bræðið saman rjóma, smjöri og Besta settinu við miðlungs hita og hrærið stöðugt í. Leyfið blöndunni að kólna og hrærið þá flórsykri út í blönduna. Setjið kremið í sprautupoka og kælið í ísskáp í sirka klukkustund.
Sprautið kreminu á milli 2ja botna af kökum sem hafa kólnað og raðið saman.
Bræðið restina af hvítu súkkulaðidropunum við vægan hita, setjið í sprautupoka, klippið örlítið gat og sprautið línum langsum og þversum á kökurnar. Látið storkna áður en gengið er frá kökunum.

2. sæti. Carola Ida Kölhler á heiðurinn af þessum. Hárrétt magn af lemon curd heillaði dómnefndina

Jólastjörnur

Kökur
300 g Kornax hveiti
50 g malaðar möndlur (skinnlausar)
Rifinn börkur af einni sítrónu
100 g flórsykur
50 g rjómi
180 g kalt smjör
Möndluflögur

Krem
200 g Nóa Síríus ljósir súkkulaðidropar
50 g rjómi
4-5 matskeiðar lemon curd

Kökur
Hveiti, möndlmjöl, sítrónubörkur og flórsykur sett í skál og blandað saman.
Rjómi og smjör (í litlum bitum) sett saman við og hnoðað saman. Setjið deigið (flatt) í plast og kælið í sirka klukkustund.
Fletjið út þunnt og stingið út með stjörnuformi eða einhverju öðru formi. Athugið að helmingur af kökunum er efri hluti, hinn helmingurinn eru botnar.
Penslið mjólk á helminginn af kökunum og setjið möndluflögur ofan á.
Hitið ofninn i 180 g eða 160 g (blástur)
Setjið kökurnar á bökunarpappír á ofnplötu og bakið í sirka 10-12 mínútur eða þar til kökurnar eru ljósgylltar í brúnum.
Kælið kökurnar alveg.

Krem
Setjið rjómann í pott og hitið að suðu. Takið af hellunni og setjið súkkulaðið út í og hrærið vel eða þar til allt hefur blandast vel.
Kælið aðeins og blandið lemon curd-inu saman við. Kælið alveg (má setja í ísskáp).
Setjið kökurnar saman með kreminu.

3. sæti, Dísur, höfundur Valdís María Guðmundsdóttir

Dísur – Tvíbotna smákökur með hvítsúkkulaðihjúp og möndlubitum

Fyrsti botn (mjúkur fljótandi)
56 g ósaltað smjör
60 g suðusúkkulaði frá Nóa Síríus
50 g sykur
25 g púðursykur
17 g kakóduft frá Nóa Síríus
½ teskeið vanilludropar
¼ teskeið salt
1 egg
32 g Kornax hveiti

Seinni botn (súkkulaðibita smákaka)
115 g ósaltað smjör
100 g sykur
50 g púðursykur
1 teskeið vanilludropar
1 egg frá Nesbú
½ teskeið salt
½ teskeið lyftiduft
¼ teskeið matarsódi
160 g Kornax hveiti
170 g suðusúkkulaði frá Nóa Síríus

Smyrjið eldfast mót eða annað form og leggið bökunarpappír í mótið
Hitið ofninn í 175 gráður með blæstri
Fyrir fyrsta botn skal bræða smjörið og suðusúkkulaðið saman og bæta kakóduftinu út í þegar það hefur bráðnað
Hrærið sykrinum og púðursykrinum við smjörblönduna og bætið eggi og vanilludropunum út í. Þeytið vel (sirka 5 mínútur) og bætið hveitinu við.
Setjið deigið í þunnu lagi í mótið
Fyrir seinni botn skal fyrst þeyta saman smjörinu og sykrinum þar til létt og ljóst. Síðan bæta vanillu og eggi út í ásamt saltinu, lyftiduftinu og matarsódanum. Hveitið sett út í og hrært lítið ( þar til blandað)
Suðusúkkulaðið er hakkað og bætt við varlega með sleif.
Búið til litlar kúlur og dreifa ofan á fyrsta botninn þar til vel hulið.
Bakið í 30 mínútur.
Bræðið hvítt súkkulaði frá Nóa Síríus og dýfið köldum kökunum í hálfum í og dreifið möndlunum yfir.

Vinningshafarnir 2022: Linda Björk Markúsdóttir, Carola Ida Köhler og Valdís María Guðmundsdóttir.

JÓLINSMÁKÖKURSMÁKÖKUSAMKEPPNI KORNAXCAROLA LEMON CURD

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.