Prýðisgott fiskipaté
Hrefna Laufey á Gistiheimilinu Ásum, rétt fyrir innan Akureyri er höfðingi heim að sækja. Um það vitna fögur ummæli gesta hennar og fólk sem hefur notið gestrisni hennar og þeirra hjóna því Árni hennar maður er liðtækur í mörgu. Þau hjónin skora hátt hjá ferðafólki og raða inn tíum á bókunarsíðum.
— HREFNA LAUFEY — JÓLIN — AKUREYRI — GRAFLAXSÓSA —
— ÞORLÁKSMESSA — SÍLD — RÚGBRAUÐ — SMÁKÖKUR — HÚSFREYJAN —
.
Fiskipateið góða var á hlaðborði sem þau hjón göldruðu fram fyrir jólablað Húsfreyjunnar.
Prýðisgott fiskipaté
6 dl. eldaður fiskur (hvaða fiskur sem er)
3 dl. rjómi (þeyttur)
2 dl. mæjónes
2 dl. sætt sinnep
1 dl. Chilisósa frá Heinz
2 tsk. smátt saxaður laukur
Buljong gel frá Toro (sjóða 2 dl. Vatni og hræra gelinu saman við. Kæla svo með 3 dl. af köldu vatni)
2 tsk. Ítalíukrydd frá Pottagöldrum
1 tsk. dill
Salt og pipar
Öllu blandað saman, nema Buljong geli, rjóma og fiski. Buljong gelið blandað saman við og síðast fiskinum og rjómanum. Borið fram með graflaxsósu og góðu brauði.
— GRAFLAXSÓSA — BRAUÐ —
.
— HREFNA LAUFEY — JÓLIN — AKUREYRI — GRAFLAXSÓSA —
— ÞORLÁKSMESSA — SÍLD — RÚGBRAUÐ — SMÁKÖKUR — HÚSFREYJAN —
.