London lon og don – góður matur, sögleikir og margt fleira
Það er gaman að skella sér í leikhúsferð til London, sýningar eru svo að segja óteljandi og gott að vera búinn að plana með góðum fyrirvara, eiga miða fyrir hvert kvöld í símanum og svo bara njóta lífsins áhyggjulaus! Í þetta sinn var planið að fara á kaf í söngleikjagleði. En London er endalaus uppspretta af flestu því sem hugurinn girnist og ólíkt því sem oft heyrist er maturinn þar bæði góður og fjölbreyttur. Við röltum um Notting Hill hverfið, hrikalega kósí, vöndruðum auðvitað í miðbænum, fórum oft út að borða og að sjálfsögðu í Afternoon Tea, en það er nú eiginlega skylda í London, að þessu sinni á Fortnum & Mason, þar sem í hópinn slógust vinir okkar, Pétur Ernir Svavarsson og Ari Ólafsson, sem báðir stunda söngleikjanám í Royal Academy of Music og eru efni í stjörnur báðir tveir.
— LONDON — AFTERNOON TEA — MATARBORGIR — ARI ÓLAFSSON —
.
— LONDON — AFTERNOON TEA — MATARBORGIR — ARI ÓLAFSSON —
.