Jólahlaðborð á Indo-Italian

Indo-Italian restaurant jólahlaðborð indland ítalía Shijo og Helen Hjónin Shijo Mathew og Helen Rose persónuleg þjónusta good restaurant in Reykjavik best restaurants in iceland
Shijo, Albert og Helen

Jólahlaðborð á Indo-Italian

Jólamaturinn á Indo-Italian í Laugardalnum er til háborinnar fyrirmyndar. Næstu laugardaga bjóða hjónin Shijo og Helen upp á jólahlaðborð. Við brugðum undir okkur betri fætinum og smökkuðum herlegheitin – þetta er alveg frábært, mikið úrval rétta, allt frá pikkluðu grænmeti, bragðmiklum ostum og laxi til purusteikur og kalkúns með brúnuðum kartöflum og rauðkáli. Þetta er hin skemmtilegasta samsetning, fiskur í kókosmjólkursósu, Vindalou kjötréttur, en líka laufabrauð!

Trompið á Indo-Italian er klárlega einstaklega ljúffengur matur en plúsinn er að Shijo og Helen taka sjálf á á móti gestum með bros á vör og útskýra hlaðborðið og hvernig best er að bera sig að. Persónuleg þjónusta er gulls ígildi.

Næstu jólahlaðborð á Indo-Italian verða 30. nóvember, 7. og 14. desember. Mæli hundrað prósent með þessu jólahlaðborði – pantið HÉR.

JÓLAHLAÐBORÐINDO-ITALIANVEITINGASTAÐIRJÓLIN

.

Jólahlaðborð á Indo-Italian
Jólahlaðborð á Indo-Italian
Jólahlaðborð á Indo-Italian
Jólahlaðborð á Indo-Italian
Jólahlaðborð á Indo-Italian
Jólahlaðborð á Indo-Italian
Jólahlaðborð á Indo-Italian
Indo-Italian restaurant
Indo-Italian restaurant
Eftirréttirnir á jólahlaðborðinu á Indo-Italian: JólaTiramisu, Gulab jamun og Rice kheer
Eftirréttirnir á jólahlaðborðinu: JólaTiramisu, Gulab jamun og Rice kheer. Færslan er unnin í samvinnu við Indo-Italian.

JÓLAHLAÐBORÐINDO-ITALIANVEITINGASTAÐIRJÓLIN

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.