
Tapasbarinn 25 ára
Það er einhver sérstök stemning á Tapasbarnum – suðrænt umhverfið, blátt áfram, yndisleg þjónusta og frábær matur. Þessar vikurnar er 25 ára afmæli Tapasbarsins fagnað. Óvissuferð í tilefni afmælisins er fjölbreytt og einstaklega ljúffeng og auðvelt að mæla með heils hugar. Það er skilyrði að mæta svangur, við erum að tala um fjóra forrétti og fjóra seðjandi rétti og þetta allt fyrir 12.900 kall, sem er eins og einn extra góður réttur víða annars staðar – við vorum alsælir og óskum Tapasbarnum til hamingju með stórafmælið.
Vert er að taka fram að matseðillinn er ekki alltaf sá sami, eins konar óvissuferð dagsins. Látið koma ykkur á óvart og fagnið afmælinu með Tapasbarnum.
— TAPASBARINN — TAPAS — VEITINGASTAÐIR — ÍSLAND —
.
Tapasbarinn 25 ára
.







— TAPASBARINN — TAPAS — VEITINGASTAÐIR — ÍSLAND —
.