Nautakjötssalat með límónu og engifersósu

Ferskt nautakjötssalat með límónu, engifer og bragðmikilli sósu

0
Auglýsing
Ferskt og bragðmikið nautakjötssalat með límónu og engifersósu. Léttur og fljótlegur réttur sem hentar jafnt í kvöldmat eða sem veisluréttur.

Nautakjötssalat með límónu og engifersósu

Þetta ferska nautakjötssalat með límónu og engifersósu er bæði létt og bragðmikið – fullkomið þegar þú vilt eitthvað sem er fljótlegt en samt sérstakt. Safaríkt nautakjöt, stökk grænmeti og fersk límónusósa sem gefur réttinum frískandi og örlítið kryddað yfirbragð.
Hentar jafnt sem léttur aðalréttur eða fallegur réttur á veisluborð.

Það er öflug starfsemi í Hússtjórnarskólanum í Reykjavík og mikil gleði þar bæði hjá nemendum og kennurum. Við vorum svo ljónheppnir að vera boðnir í fjölskylduboð nemenda sem haldin eru reglulega. Þar er öllu tjaldað til og meðal margra góðra rétta var þetta girnilega nautakjötssalat sem á bæði vel við á hlaðborði eins og í Hússtjórnarskólanum eða sem sérréttur.

Auglýsing

HÚSSTJÓRNARSKÓLINN Í REYKJAVÍKHÚSMÆÐRASKÓLARSALÖTNAUTAKJÖT

.

Nemendur á tröppum Hússtjórnarskólans í Reykjavík

Nautakjötssalat með límónu og engifersósu

Marinering:
4 hvítlauksgeirar saxaðir
2 tsk salt
2 tsk pipar
2 tsk rifinn lime börkur
4 msk Sweet Chili sósa
2 tsk sesam olía
1/2 dl ristuð sesamfræ

Sósa með salatinu:
4 msk lime safi
2 tsk rifið engifer
1 saxaður skalottulaukur
1/3 tsk sjávarsalt
2 msk sojasósa
2 dl ólífuolía
3 tsk sesamolía

Steikið kjötið og skerið í þunnar sneiðar. Marinerið það daginn áður eða 4 klst fyrir notkun.
Ferskt salat sett í fat og kjötið yfir.
Skerið rauðlaukur frekar smátt
Skerið kokteltómata í tvennt og setjið yfir
Dreifið ristuðum sesamfræjum yfir salatið í lokin.

Ferskleiki, léttleiki og bragð í fullkomnu jafnvægi – réttur sem slær alltaf í gegn.

Hluti nemenda sá um að útbúa veislumat fyrir fjölskylduboðið og annar hluti gekk um beina í veislunni
Gestum var boðið að skoða handavinnu nemenda og þar tóku Bergþór og Ellert Blær nokkur lög

Fleira spennandi:

Kínóa- og grænmetissúpa, dásemdarsúpaAð ýmsu er að hyggja þegar matarboð er undirbúiðLax í appelsínusósu – afskaplega bragðljúfurMígreni – einkenni hættu með breyttu mataræði

Fyrri færslaGistihúsið Egilsstöðum – Lake hotel
Næsta færslaSúr-sætt rauðkál