
Gistihúsið Egilsstöðum – Lake hotel
Það minnir dálítið á herragarð að koma á Gistihúsið á Egilsstöðum, staðsetningin við Lagarfljótið einstök, himinhá trén, blómleg sveitin allt um kring, en samt í göngufæri frá miðbæ Egilsstaða.
Framreiðslan á veitingunum var til fyrirmyndar, litfagur maturinn skreyttur með blómum úr nágrenninu þar sem sóleyjar og sigurskúfur voru mest áberandi. Það er afar ánægjulegt þegar veitingamenn leggja sig fram um að bjóða upp á hráefni úr næsta nágrenni. Á veitingastað Gistihússins, sem kallast Eldhúsið, er nautakjötið frá Egilsstaðabúinu, wasabíið er ræktað í Fellabæ, lynghænueggin koma frá Seyðisfirði svo nokkur dæmi séu nefnd. Auk fjölbreytts matseðils er hægt að velja þriggja rétta seðil sem kallast Beint frá býli.
— EGILSSTAÐIR — GISTIHÚSIÐ EGILSSTÖÐUM — VEITINGAHÚS — ÍSLAND — LYNGHÆNUR — WASABI —
.








Fleira áhugavert:
— Hvítlaukskartöflur Helgu – Heill kjúklingur í ofni, mjöööög góður – Múffur með eplum og haframjöli – Vínartertan góða og fræga – Sælgætismolar — – Soðin egg — Heimsins bestu bollur, skólabollur — Hvað er kurteisi? –—
