Elísabet drottning 100 ára

Elísabet drottning 100 ára – falleg minningarstund og konungleg stemning

0
Auglýsing
Elísabet drottning – minning hennar lifir áfram, ekki síst í hlýju og virðingu sem hún vakti hvar sem hún fór.

Elísabet drottning 100 ára

Það var falleg og hátíðleg stund á Hrafnistu í Hafnarfirði þegar þess var minnst að öld er liðin frá fæðingu Elísabetar drottningar.

Gestir nutu samverunnar í hlýlegu umhverfi þar sem greinilegt var að vel hafði verið vandað til verka í hvívetna. Sérstaklega var ánægjulegt að sjá hversu fallega heimilisfólkið hafði búið sig – hattar, perlufestar og fágaður klæðnaður settu tóninn og kölluðu fram rétta royal-andann.

Auglýsing

Starfsfólk Hrafnistu á einnig mikið hrós skilið fyrir einstaka umgjörð og hlýja móttöku. Það er ekki sjálfgefið að skapa svona notalega og virðulega stemningu – en hér tókst það með miklum sóma.

Elísabet drottning var ein áhrifamesta kona 20. aldar og ríkti í yfir sjö áratugi – lengur en nokkur annar breskur þjóðhöfðingi . Hún var tákn stöðugleika, skyldurækni og reisnar á tímum mikilla breytinga.

Það var því vel við hæfi að minnast hennar með þessum hætti – með virðingu, hlýju og smá glampa af konunglegri fágun.

ELÍSABET DROTTNINGENGLANDROYAL

.

Öllu var til tjaldað á Hrafnistu í Hafnarfirði í tilefni dagsins
Skálað fyrir Elísabetu
Farið yfir nokkur helstu atriðin í lífi drottningar

 

Liltlar samlokur, makkarónur, marsipankökur og fleira góðgæti.
Árdís, Elísabet, Albert og Vilborg
Starfsfólk Hrafnistu á einnig mikið hrós skilið fyrir einstaka umgjörð og hlýja móttöku. Það er ekki sjálfgefið að skapa svona notalega og virðulega stemningu – en hér tókst það með miklum sóma.
Hattur og perlufesti
Prúðbúnar dömur í fallega skreyttum matsal Hrafnistu

Stund sem þessi minnir okkur á að sannur glæsileiki felst ekki aðeins í kórónum og titlum – heldur í framkomu, reisn og því hvernig við komum fram hvert við annað.

Fleira áhugavert:

GúrkusamlokurRoyal búðingur FreyðivínHattasiðirRoyalistafélagið

Fyrri færslaKubbasteik – hægeldað lambakjöt með grænmeti í einum potti
Næsta færslaFyrsta íslenska matreiðslubókin