Pistasíukaka
Einhverju sinni hringdi Benni í mig og benti mér á köku sem inniheldur sítrónur, pistasíuhnetur og möndlur. Að sögn var hún hreint ólýsanlegt hnossgæti. Samsetningin kom mér forvitnilega fyrir sjónir svo ég stóðst ekki mátið, varð mér úti um uppskriftina og bakaði kökuna á sunnudagssíðdegi við ljúfan undirleik Rásar 1. Það er gaman að segja frá því að pistasíukakan stóð fyllilega undir þeim væntingum sem við hana voru bundnar. Volg er hún lostæti, en köld er hún líka einkar ljúffeng.
– PISTASÍUR — BRAUÐ — HNOSSGÆTI —
Pistasíukaka
250 g mjúkt smjör
1 bolli sykur
4 egg
2 msk góð olía
1 tsk vanilla
1/2 tsk salt
börkur af einni sítrónu (fínt rifinn)
safi úr 1/2 sítrónu
4 msk hveiti
100 g möndlur
120 g pistasíur
Þeytið smjör og sykur vel og bætið eggjunum við, einu í einu. Bætið vanillu við ásamt olíu, sítrónuberki, sítrónusafa, salti, hveiti, söxuðum möndlum og pistasíum. Setjið bökunarpappír í jólakökuform, deigið þar í og bakið í 50-60 mín. við 160°C. Látið kólna lítið eitt í forminu.
Ofan á:
1 sítróna
60 g pistasíur
70 g strásykur
smá salt
Rífið sítrónubörk gróft og kreistið safann. Skerið pistasíur í helminga. Setjið sykur og sírónusafa í pott og sjóðið þangað til það er orðið að sírópi. Bætið berkinum við og loks pistasíunum og hellið yfir kökuna.