Forsetatertan 2012. Nokkrir meðlimir í Konditorsambandi Íslands komu færandi hendi á Bessastaði í dag með heljarinnar tertu sem bökuð hafði verið í tilefni af forsetakosningunum. Forsetakakan 2012 er saman sett úr frönskum möndlubotni, karamellu og súkkulaði mousse og með steyptum hindberjakjarna. Auk þess verður hún meðal annars skreytt með blásnum og teygðum sykri. Sigurður Már konditormeistari brást skjótt við beiðni minni um uppskriftina. Hér má sjá myndir frá Bessastöðum í dag
Forsetatertan 2012
Franskur möndlubotn:
125gr egg
90gr flórsykur
90gr möndlumjöl (Sosa)
25gr hveiti
20gr smjör
——————————
160gr eggjahvítur
40gr strásykur
Blanda saman eggjunum, flórsykrinum, möndlumjölinu og hveitinu. Bræða smjörið og hella því út í. Blanda þessu svo saman við massann af stífþettu eggjahvítunum og strásykrinum. Bakað í 7 til 8 min á 200°C .
Súkkulaði og karamellu Mousse:
1000 gr mjólk
1600 gr Cacao Barry karamellusúkkulaði
20 gr gelatín
2000 gr rjómi(létt þeyttur)
Hita mjólkina að suðu og gelatíninu er bætt útí. Blandað saman við súkkulaðið. Þegar blandan hefur kólnað níður í 35°C er óhætt að blanda henni saman við rjómann.
Hindberjakjarni:
750gr hindberjapúrra (Cap Fruit)
150gr strásykur
7 stk matarlímsblöð
Best er að hita púrruna og stásykurinn í potti eða í örbylgjuofni og blanda svo gelatín mixinu útí. Hella í form og frysta. Ef þessu er helt í stóran bakka og svo stungið út er hægt að bræða þetta aftur upp í örbylgjuofni og endurtaka leikinn.
Myndirnar eru fengnar af síðu Konditorsambands Íslands