
Fíflasíróp
Hættum nú í eitt skipti fyrir öll að agnúast út í fíflana, þeir eru harðgerðir og ekkert vinnur á þeim. Sættist við fallega túnfífla og nýtið þá.
.
Því miður átti ég ekki 500 g af sykri svo ég setti hunang á móti, sírópið smakkast afar vel.
Fíflasíróp
amk 300 fíflablóm
safi úr einni sítrónu
vatn
1/2 kg sykur
1/3 tsk salt
Klippið græna hylkið af fíflablómunum og setjið gula hlutann í pott ásamt sítrónusafanum. Bætið við vatni svo rétt fljóti yfir fíflana og sjóðið í 20 mínútur. Síið vökvann frá. Því næst er vökvinn settur í pott og sykrinum bætt út í. Blandan er látin malla við vægan hita í u.þ.b. þrjá tíma án þess að lokið sé á pottinum – eða þangað til sírópið er passlega þykkt. Hellið sírópinu í tandurhreinar krukkur, lokið og geymið í ísskáp.

Auglýsing
Snilld. Yndislegt að sjá fíflana nýtta í matarkyns. Prófa þetta pottþétt í næstu ferð til Íslands.
Mig langar að vita hvort það er sama hvenær sumars maður tínir sér fíflana í sírópið? … Semsagt hvort það skiptir máli,hvort eru ungir eða teknir seinna af sumri?
Comments are closed.