Karamelluhnetur
Á ættarmótinu kom Sólveig frænka mín með ægigott hnetumauk með karamellubragði. Eins og áður hefur komið fram fer fólk mismikið eftir uppskriftum (ég er einn af þeim). Stundum getur verið snúið að fá uppskriftir í réttum hlutföllum. Uppskriftin hér að neðan er eins og ég fékk hana senda:
Albert! þú gerir létt karamellukrem, það má vera þunnt bætir við allskonar hnetum, möndlum með hýði. Ég mauka þetta með töfrasprotanum. Ég hef graskersfræ heil með líka. Mér finnst þetta hrikalega gott. Kv. Sólveig Þorleifs
☄️
— SÓLVEIG ÞORLEIFS — ÍSLENSKT — KAFFIMEÐLÆTI — KJÖTSÚPA — SÚPUR — LAGKÖKUR — ÆTTARMÓT — SALÖT — KARAMELLA —
☄️
☄️