Í nokkur ár höfum við Bergþór dæmt í jólasmákökusamkeppni hjá Opus lögmönnum, í ár fengum við þokkadísina Völu Matt til að dæma með okkur. Hér vinningsuppskrift Oddgeirs í smákökusamkeppninni.
“Í grunninn er þetta þessi uppskrift sem ég fann á netinu og var í fyrsta þætti Jóa Fel í vetur. Ég hafði ætlað að vera með eitthvað agalega sniðugt og skemmtilegt en brann út á tíma og fann þetta á netinu þegar strákurinn var farinn að sofa og gúggl að heimsins bestu smáköku hafði hrakið mig langleiðina að miðnætti.
Á dauða mínum átti ég von fremur en að sigra í þessari keppni.”
Bergþór, Vala, Oddgeir og Albert
Döðlu kexkökur
150 g hveiti
½ tsk matarsódi
¼ tsk salt
125 g smjör
100 g púðursykur
100 g sykur
2 stk egg
150 g haframjöl
50 g kornflex
50 g döðlur, saxaðar
100 g súkkulaði, saxað
Setjið þurrefnin saman í skál. Vinnið sykurinn og púðursykurinn vel saman með smjörinu þar til létt og ljóst. Setjið eggin saman við rólega og vinnið vel saman. Setjið þurrefnin saman við og vinnið rólega saman. Blandið svo haframjölinu, kornflexinu, döðlunum og súkkulaðinu saman við og vinnið rólega saman í gott deig. Setjið deigið á plötu með teskeið og bakið við 190° í c.a 12-14 mín.
Uppskriftin er hér að neðan eins og hún birtist á netinu en hún segir aðeins hálfa söguna. Ég endurtek – uppskriftin hér að neðan er ekki alveg lýsandi fyrir baksturinn minn. Breytingunum er lýst hér að neðan og felast þær aðallega í meiri óvissu um magn, minni döðlum og súkkulagðirúsínuviðbót. Ég mæli líka með að baka sem styst – 12,5 mínútur held ég að hafi komið best út hjá mér – þá verða þær aðeins mýkri.
Ég byrjaði á því komast að því að vigtin var biluð og þurfti því að áætla þyngd með öðrum aðferðum (eins og að 1 dl af hveiti sé ca 60gr og 1 dl. af sykri um 85 gr.) og tilfiinningu óreynds bakara. Síðan komst ég að því að púðursykurinn minn var orðinn að þyrrum steini svo ég þurfti að mylja hann í sand eftir bestu getu og bæta vatni við eftir því sem tilfining mín sagði mér að hefði gufað upp úr púðursykrinum. Síðan blanda ég sykrinum, púðursykrinum og smjörinu saman en það verður miklu þykkara en ég hafði talið að ætti að vera en þorði ekki að bæta við meira af vatni. Svo blandaði ég eggjunum saman við en það blandaðist afar illa saman og þá fór svo að ég setti kitcenaidið á hæsta snúning þannig að ég neyddi þetta einhvernveginn saman, andstætt ráðleggingum Jóa Fel. Sama átti eiginlega við um þurrefnin, ég þurfti að hræra á miklu meiri hraða en allar fræðikenningar segja að eigi að gera. Það á víst að gera kökur seigar að hræra þurrefnunum hratt saman við. Það sem mér finnast döðlur ekkert æðislegar setti ég minna af þeim en uppskriftin hér að neðan segir til um. Þá bætti ég við tveimur handfyllum af súkkulaðirúsínum (californíu). Ég skar suðusúkkulaðið í frekar grófa bita en döðlurnar í smáa bita.
MÍGRENI. Heyrði af manni sem reglulega fékk slæm mígreniköst. Þegar hann hætti að borða kjöt hættu mígreniköstin. Áhugavert, hér er grein um mat og mígreni þar er ritað um áhrif tyramíns (tyramine) sem er í rauðvíni, kæstum ostum, reyktum fiski, baunum o.fl.
Rabarbara tiramisu. Um helgina var sjálfbær þorpshátíð á Stöðvarfirði sem kölluð er "Maður er manns gaman" - í öll skiptin sem hátíðin hefur verið haldin, hefur verið rabarbararéttakeppni. Tíu ára frænka mín sendi inn meðfylgjandi uppskrift og vann fyrstu verðlaun fyrir.
Hummús. Fátt er betra ofan á (pítu)brauð og kex en hummus, sérstaklega fyrir þá sem elska hvítlauk. Oftar en ekki nota ég mun meira af hvítlauk en stendur í uppskriftinni. Ágætt er að hafa í huga að hummmús geymist ekkert sérstaklega vel, því er betra að útbúa minna magn í einu.
Betra líf með hollari mat og ráð frá Betu næringarfræðingi. Það gerist margt á einu ári. Á síðustu 12 mánuðum hef ég verið svo lánsamur að hitta Betu Reynis næringarfræðing reglulega og fara yfir mataræðið og horfa á heilsu mínu meira heildrænt. Það sem ég hef lært er að hitaeiningar og vigt segja ekki alla söguna. Beta hefur kennt mér að hlusta á líkamann og hvernig ákveðnar matarvenjur og hefðir hafa áhrif á heilsuna. Hún var með allskonar vangaveltur um áhrif frá æsku á matarhegðun og hvernig er hægt að leika á vanann sem virðist vera það erfiðasta af þessu öllu. Næsta skref er að fara í allsherjar heilsufarsmælingu og blóðprufu í Heilsuvernd. Það verður skrifað hér um hvað kemur út úr því og hvað gerist í framhaldinu.