![Bananabrauð Eiríks Ægis eiríkur ægir íris eva einarsdóttir andri rafn helgason vilborg eiríksdóttir bananar banani](https://i0.wp.com/alberteldar.is/wp-content/uploads/2022/03/IMG_1386.jpeg?resize=696%2C522&ssl=1)
Bananabrauð Eiríks Ægis
Bananabrauð er í miklu uppáhaldi hjá fimm ára frænda mínum, Eiríki Ægi og bakar hann það oft með foreldrum sínum. Um daginn bauð hann okkur í kaffi og nýbakað bananabrauð. Það má sko vel mæla með þessu fína kaffimeðlæti.
🍌
— BANANABRAUÐ — BANANAR — BRAUÐ — KAFFIMEÐLÆTI — ÍRIS OG ANDRI —
🍌
![](https://i0.wp.com/alberteldar.is/wp-content/uploads/2022/03/IMG_1372.jpeg?resize=696%2C522&ssl=1)
Bananabrauð Eiríks Ægis
2 bananar (helst smá brúnir)
1 egg
2 1/2 dl hveiti
1/2 dl sykur
1 tsk kanill
1 msk kókósmjöl
1/2 tsk matarsódi
1/4 tsk salt
Nokkra dropa af vanillu extract/dropa
180 C í um 45 mínútur
Stappið bönunum og eggi saman.
Setjið sykur og vanillu extract/dropa og blandið saman.
Loks er öllum þurrefnum bætt við og hrært vel.
Sett í ílangt brauðform og inn í ofn við 175°C í um 45-50 mín.
![](https://i0.wp.com/alberteldar.is/wp-content/uploads/2022/03/IMG_1394.jpeg?resize=696%2C522&ssl=1)
![](https://i0.wp.com/alberteldar.is/wp-content/uploads/2022/03/IMG_1399.jpeg?resize=696%2C522&ssl=1)
🍌
— BANANABRAUÐ — BANANAR — BRAUÐ — KAFFIMEÐLÆTI — ÍRIS OG ANDRI —
🍌