Gulrótakaka – vegan
Bragðgóð eggja- og smjörlaus gulrótakaka. Kakan er mjög mjúk og svo auðveld að allir geta bakað hana.
Gulrótakaka – vegan
1 1/2 b heilhveiti
1 tsk lyftiduft
1/2 tsk matarsódi
1/2 tsk salt
1 msk kanill
1/2 b sykur
3 kúffullar teskeiðar möluð hörfræ
1/4 b vatn
1/4 b góð olía
1 1/2 b rifnar gulrætur
1 b (soya)mjólk
3/4 b rúsínur
1/4 b saxaðar valhnetur.
Blandið öllu saman og bakið í smurðu tertuformi í um 40 mín við 180°