Sumarsalat

Sumarsalat grænkál feta grillmatur Sumarsalat með hollu íslensku grænmeti íslenskt grænmeti
Sumarsalat með hollu íslensku grænmeti

Sumarsalat

Bragðmikið íslenskt grænmeti flæðir nú frá garðyrkjubændum, þjóðinni til mikillar gleði. Held að grænmetisbændur ættu að hugsa stórt, nýta jarðhitann, fá rafmagn á sama verði og álverin og hefja útflutning á grænmeti. Borðum meira grænmeti og munið að grænmeti er ekki gras eins og maður heyrði stundum í gamla daga 🙂

Sumarsalat

Vel af grænu salati

1 pk kirsuberjatómatar

1/2 rauð paprika

1 mangó

1 avókadó

steinselja (vel af henni)

geitaostur (ef vill)

Skerið niður og setjið í skál

Dressing

2 msk góð olía

1 tsk tamarin sósa

2 msk vatn

smá (Dijon)sinnep

Blandið öllu saman og hellið yfir salatið

Sumarsalat Scott Fisher Alex

Amerískir vinir okkar komu hingað í mat, þau fengu lambalæri með gratíneruðum kartöflum, Waldorfssalati og þessu sumarsalatið

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Fjaran á Húsavík

Fjaran

Fjaran á Húsavík. Á ferðalagi okkar um Norðurland var borðað á nýjum veitingastað á Húsavík. Tveir ungir menn gengu um beina og stjönuðu við okkur - þeir voru með augu á hverjum fingri, eins og sagt er um þægilegt framreiðslufólk með þjónustulund. Maturinn var einstaklega góður, við fengum sætkartöflusúpu í forrétt og steikta bleikju með byggottói, steiktu fenneli og hollandaise sósu. Fallegur staður sem mæla má með.

Að sjóða hrísgrjón

Hrísgrjón

Eins og kunnugt er er mikill vandi að sjóða hrísgrjón. Var að heyra gott ráð hvernig gott er að sjóða þau - að sjálfsögðu fór ég strax og prófaði húsráðið og viti menn, þetta virkar.