Lasagna með ricotta- og spínathjúp
Borðum meira grænmeti! Það mælir allt með aukinni grænmetisneyslu. Grænmetisréttir eru auðveldir, fallegir og oft á tíðum ódýrir. Svo þarf nú varla að taka fram lengur hve hollt grænmetið er – fullkomið fjörefnafóður.
.
Lasagna með ricotta- og spínathjúp
6 msk ólífuolía
1 meðalstórt eggaldin skorið í litla bita
250 g sveppir, skornir í sneiðar
3 rauðar paprikur, skornar í strimla
2 hvítlauksrif, söxuð
1 laukur, saxaður
1 tsk grænmetiskraftur
salt og pipar
1 msk oreganó
500 ml passata (tómatmauk)
8-10 lasagnablöð
2 dl ricotta
2 dl smátt saxað spínat
1 dl grænt pestó
2-3 msk rifinn parmasan
1 dl furuhnetur.
Steikið eggaldin á pönnu í hluta af olíunni og setjið í skál, steikið því næst sveppi og setjið í sömu skál. Steikið loks lauk og hvítlauk í restinni af olíunni og blandið saman við grænmetið. Kryddið og blandið saman.
Setjið helminginn af grænmetinu í eldfast form, dreifið helmingnum af tómatsósunni yfir og svo lasagnablöð þar yfir. Endurtakið. Blandið saman ricotta, spínati, parmasan og pestói og dreifið yfir. Setjið álpappír yfir og bakið við 175° í um 40 mín. Takið álpappírinn af, stráið furuhnetum og parmasan yfir og bakið áfram í um 15 mín. við 150°. Berið fram með grænu fersku salati.
.