Auglýsing
Túrmerikheilsudrykkur Þóru, Þóra Einarsdóttir, kristjana stefánsdóttir Túrmerik, föstudagskaffi turmeric turmerik
Túrmerikheilsudrykkur Þóru

Túrmerikheilsudrykkur Þóru

Eins og hundrað og eitthvað sinnum hefur komið fram skiptumst við á að koma með hressingu með tíukaffinu á föstudögum í vinnunni. Þóra sló heldur betur í gegn með tveimur tegundum af brauðmeti og þessum undurgóða heilsudrykk. “Fékk þessa uppskrift frá vinkonu minni Kristjönu Stefáns, hún setur líka smá hrátt villiblómahunang saman við. Svo á ég aðra vinkonu sem skellir þessu ásamt einu gænu epli í gegnum safapressuna og lætur svo vatnið í gegn í lokin til að ná sem mestu af gæðunum úr pressunni.”

ÞÓRA EINARSDÓTTIRTURMERIKDRYKKIRFÖSTUDAGSKAFFI

.

Túrmerikheilsudrykkur Þóru

ferskt turmerik (3-4 bitar)

ferskt rifið engifer (einn vænn biti)

svartur pipar eða cayenne pipar eftir smekk

safi úr einni sítrónu

Allt sett í blandara með vatni ca 600 ml.

Það er allt og sumt 😉

Túrmerikheilsudrykkur Þóru

ÞÓRA EINARSDÓTTIRTURMERIKDRYKKIRFÖSTUDAGSKAFFI

— TÚRMERIKHEILSUDRYKKUR ÞÓRU —

.

SaveSave

Auglýsing