Glúteinfrí jarðarberjaterta
Mikið óskaplega er ég endalaust hrifinn af hrátertum. Hrátertur geta ekki klikkað, þær falla aldrei, eru yfirmáta hollar, eru aldrei misbakaðar(enda ekki bakaðar). Svo þarf ekki að hafa áhyggjur af því að þær lyfti sér illa – já svo eru þær einstaklega bragðgóðar. Með öðrum orðum þá mælir allt með hrátertum. Söngvararnir og fyrrverandi sambýlisfélagarnir Ásgeir Páll og Þorvaldur komu í kaffi. Eins og oft áður er afar gaman að gefa þeim félögum að borða – þeir taka hraustlega til matar síns.
.
— JARÐARBER — JARÐARBERJATERTUR — HRÁTERTUR — ÁSGEIR PÁLL — ÞORVALDUR —
.
Glúteinfrí jarðarberjaterta
botn:
1 b mjúkar döðlur
1 b pekanhnetur
1 b möndlur
1 tsk kanill
1 tsk chiafræ
1-2 msk vatn
1/4 tsk salt
Fylling
3 b jarðarber, fersk eða frosin
1 b kasjúhnetur
1 msk sítrónusafi
2 msk maple síróp
1 tsk vanilla
Ofan á:
börkur af einni sítrónu
Botn: Setjið allt í matvinnsluvél og maukið. Setjið ca 20 cm kringlótt form á tertudisk (ekki með botni, þjappið deiginu þar ofan í og aðeins upp með hliðunum.
Fylling: Blandið saman í matvinnsluvél hnetum, sítrónusafa, sírópi og vanillu. Bætið við jarðarberjunum og maukið áfram. Setjið fyllinguna ofan á botninn og frystið. Berið tertuna fram hálffrosna. Rífið sítrónubörk og dreifið yfir.
.
.