Sítrónubaka með ferskum berjum
Í vikunni var morgunverðarveisla starfsfólks Listaháskólans – starfsfólk Tónlistar- og Sviðslistadeilda buðu hinum deildunum í morgunkaffi og með því. Björk sló í gegn með þessari sítrónuköku sem hvarf eins og dögg fyrir sólu. Björk fer að verða tertudrottning eða -prinsessa Íslands. Af tíu vinsælustu uppskriftum síðasta árs átti hún tvær: Döðlutertu með jarðarberjarjóma og Kókosbolludraum
— BJÖRK JÓNSD — FÖSTUDAGSKAFFI – LISTAHÁSKÓLINN —
.
Sítrónubaka með ferskum berjum
Botn:
2 1/2 dl hveiti
1/2 dl sykur
1 tsk vanilla
150 g smjör, lint
1/3 tsk salt
Fylling:
3 egg
3 dl sykur
1/2 dl hveiti
Safi úr einni sítrónu
börkur af einni sítrónu
Fersk ber til skrauts
Botn: Blandið öllu saman
Fylling: Þeytið saman eggjum og sykri. Bætið hveiti, sítrónuberki og sítrónusafa saman við. Þjappið deiginu í ferkantað form – ca 20-25 cm og bakið við 200° í 12-15 mín. Helllið fyllingunni yfir og bakið áfram í 10 mín. Kælið. Stráið flórsykri fyrir. Skerið í ferkantaða bita og skreytið með ferskum berjum.
— BJÖRK JÓNSD — FÖSTUDAGSKAFFI – LISTAHÁSKÓLINN —
.