Borðið – veitingastaður og sælkeraverslun. Við Ægisíðu í vesturbænum reka vinahjónin Rakel Eva og Friðrik, Martina og Jón Helgi, bjartan hverfisveitingastað og sælkeraverslun. Á virkum dögum er boðið upp á hádegis- og kvöldmat, en um helgar bröns og kvöldmat. Að auki er alltaf hægt að nálgast rjúkandi kaffibolla og nýbakað bakkelsi á Borðinu, brakandi súrdeigsbrauð, álegg skorið eftir pöntun og stútfullar hillur af dásamlegum sælkeravörum frá Ítalíu, Bretlandi og Frakklandi. Borðið er skemmtileg blanda af veitingahúsi, kaffihúsi og sælkeraverslun. Þarna fást einnig handgerð ítölsk eldhúsáhöld úr ólívuviði.
Breytt er um matseðil á Borðinu einu sinni í mánuði, enda eru margir fastakúnnar, sem annað hvort borða á staðnum eða taka matinn með sér heim og vilja því breyta til reglulega. Það er hauststemmning í nóvembermatseðlinum, dökkir tónar, sterk sósa með lambinu, bulgur með salatinu, allt vel útilátið, þannig að af einum rétti og eftirrétti verður maður þægilega saddur.
Allt var fallega framborið og heimilislegt.
Alltaf er hægt að fá grænmetisrétt og hollan rétt fyrir börnin. Þegar við komum voru fiskbollur á boðstólum fyrir þau.
FISKUR DAGSINS: Gamalkunnur réttur, fiskur með remúlaði og kartöflum sem meðlæti, er færður í nýjan búning: Snjóhvítur og stinnur steinbítur með heimalöguðu remúlaði, kúskús, sinnepsfræjum, kúrbít, sölvum og dilli yfir. Heimilislegur og ljúfur réttur sem lét vel í munni.
GRÆNMETISRÉTTUR.Grillað grasker (butternut squash) og undir því var kryddjurtakremað perlubygg, súrsaður rauðlaukur og sveppir, vel kryddað jógúrt, dill og ristaðar kasjúhnetur.
Reglulega góður, notalegur haustréttur, ég myndi koma og fá mér hann aftur. Karameliseringin gefur sætu, sultaði rauðlaukurinn og sveppirnir gefa léttsúrt bragð á móti og ristaða hnetubragðið rímar einkar vel við.
KJÖTRÉTTUR: Lambaskanki, lagður í daufan saltpækil yfir nótt og hægeldaður. Með honum voru steiktar kartöflur, kraftmikil portkonusósa (putanesca: laukur, tómatar, salvía o.fl.), svartar ólífur, laukur og steinselja.
Það er hlýlegt að koma inn úr svölu rökkrinu og fá sér þennan rétt, þetta er sannkallaður haustréttur, grunnurinn er dúnmjúkt kjötið með kartöflunum, en ítalskættuð sósan mjög bragðmikil, m.a. með reyktri papriku.
SALAT: Matarmikið salat með bulgum, í því var alls konar grænmeti, ávextir, ristuð fræ, steiktir brauðteningar, rauðrófur. Heimalöguð rauðrófudressing.
Fjölbreytt og dugar vel sem aðalréttur.
Drykkir: Hægt er að taka með sér léttvín gegn vægu tappagjaldi, en vínveitingaleyfi er vonandi á leiðinni á næstu mánuðum.
Við fengum okkur ítalska drykki til að drekka með, bragðmikla og hressandi: Gingerino drykk sem kallaður er Festivo (óáfengur , eins og Spritz Aperol, minnir svolítið á létt Campari), límonaði og mandarínudrykk.
Á eftir fengum við gott espresso úr heitum, þykkum bollum og ljúffengum kökum: hindberjaböku (með sítrónu og möndlum), gulrótarköku og fáránlega góða hnetusmjörsköku eftir ameríska kokkinn. American luxury!
Brönsinn. Á afmælisdegi Bergþórs og fengum undurgóðan mat og stórfínt kaffimeðlæti á eftir.
Grafinn og rifinn sjóurriði, amerísk skonsa, hægsoðið egg, sýrður rjómi, graslaukur og söl
Bröns flatbaka, grillað brauð, rifin andalæri, marineruð epli, sinnepssósa, stökkur ísbúi og beikon.
Grilað súrdeigsbrauð, avocado, hummus og hægeldað egg.
Við báður þjónustustúlkuna að velja fyrir okkur með kaffinu sem hún og gerði og færði okkur með brosi á vör
Súkkulaðitertu (Tall, dark & handsome). Það er alveg þess virði að gera sér ferð úr öðrum hverfum eða örðum sveitarfélögum til að bragða þessa tertu.
Graskersostaterta – litfögur og með léttu múskatkeim af botninum.
Snúðaterta með smjörkremi. Snúðatertan minnti mikið á þessa hérna, án rúsínanna. Mjög góð og stórfínt að hafa smjörkrem ofan á.
Á Borðinu er hægt að fá á alla vörulínu Niasca Portofino á Ítalíu (að vínum og grappa undanskildum!). Gosdrykkir, frábærar tómatsósur og pestó, ólífur og pasta að ógleymdum jómfrúarólífuolíunum Splendido og Nazionale.
Frá Stringhetto fjölskyldunni í Legnano á Ítalíu koma alvöru ávaxtasultur, stað sykurs og þykkingarefna á borð við pektín er aðeins notast við ávexina sjálfa og frúktósa. Til þess að þykkja sulturnar er einfaldlega notað meira af ávöxtum! Gæðahráefni, nýstárleg tækni og þrotlausar tilraunir skila sér í sultum sem eiga sér engar líkar. Súkkulaðiáleggin frá Stringhetto eru svo sér kapútúli út af fyrir sig!
Pottar, pönnur, eldföst mót og fleira frá Staub, sem hefur framleitt pottajárnsvörur í verksmiðju sinni í Alsace frá árinu 1974. Pottarnir og pönnurnar eru einstakt handverk. Níðþungt pottajárnið tryggir jafna hitadreifingu og óviðjafnanlega eldun á flestum mat. Coq au Vin, Boeuf Bourguignon, Osso Bucco, Pulled Pork hefur aldrei bragðast eins vel.
albert.eiriksson (hjá) gmail.com
Myndir: Bragi Bergþórsson