Steiktur fiskur í kókosraspi með eplum og banönum, borinn fram með hnetusósu.
Björgu Þórsdóttur kynntist ég þegar hún lærði söng í Listaháskólanum. Hún er annáluð fyrir góðan mat og mataráhuga og við áttum það til að gleyma okkur í matarumræðum í skólanum. Einhverju sinni heyrðist á skrifstofunni „Hvað heitir aftur vinkona þín sem kemur svo oft og talar um mat við þig?” Þá var verið að tala um Björgu.
„Þegar ég var lítil var amma Dúa vön að steikja fisk í raspi og bera fram með steiktum eplum, lauk og banönum og svo fékk ég kokteilsósu með. Þetta þótti mér algjört lostæti, svo þegar maðurinn minn bað mig um fisk með eplum kviknaði hugmyndin að þessum rétti. Hún sameinar ást hans á kókos og mína á hnetusósu og nostalgían fylgir svo með.”
Í eftirrétt bauð Björg upp á Rabarbaraskyr með lakkrís
— #2017Gestabloggari9/52 — FISKUR — SKYR — RABARBARI — BJÖRG ÞÓRSDÓTTIR —
.
Steiktur fiskur í kókosraspi með eplum og banönum, borinn fram með hnetusósu.
1)
1 kg þorskhnakkar (eða annar góður hvítur fiskur)
50g kókosflögur (muldar) eða kókosmjöl
Hveiti
Karrýblanda, t.d. frá Pottagöldrum
Salt og pipar
Smjör og olía til steikingar
2)
2 græn epli, skorin í bita
1-2 bananar, í sneiðum
2 skallottlaukar, smátt skorinn
vorlaukur
kóríander
kanell
…ef vill
Fiskinum velt upp úr blöndu af kókosmulningi, hveiti og karrý. Steikt upp úr smjöri og olíu í 2-3 mínútur á hvorri hlið og kryddað með salti og pipar. Sett í eldfast mót og sett í heitan ofn á meðan epli og bananar eru steikt.
Pannan hreinsuð að mestu (en ekki þvegin). Epli og skallottlaukur steikt úr vænni smjörklípu þar til þau fara að taka lit, en þá er banönum bætt við. Gott er að krydda með smávegis kanel og að lokum er vorlauk og kóríander bætt við (ef vill). Saltað og piprað.
Hnetusósa
2 – 3 vænar matskeiðar hnetusmjör
1 dl soðið vatn
5 cm bútur engifer
2 hvítlauksrif
sirka hálft chilli, eða chilli flögur
ca 1 tsk sesamolía
ca 1 tsk eplaedik
salt og pipar
Setjið allt í skál og maukið með töfrasprota. Smakkið til með sesamolíu og eplaediki, salti og pipar. Einhverjum gæti þótt gott að sæta með hunangi, en mér finnst það óþarfi. Mjög gott er að nýta það sem eftir er í hnetusmjörskrukkunni með því að hella soðnu vatni í krukkuna og hrista vel.
Fiskurinn borinn fram með ofnbökuðum kartöflum og fersku salati.
— #2017Gestabloggari9/52 — FISKUR — SKYR — RABARBARI — BJÖRG ÞÓRSDÓTTIR —
— STEIKTUR FISKUR Í KÓKOSRASPI —
—