Steiktur fiskur í kókosraspi með eplum og banönum, borinn fram með hnetusósu

Steiktur fiskur í kókosraspi með eplum og brynjar ýmir birgisson björg þórsdóttir banönum, borinn fram með hnetusósu björg þórsdóttir
Steiktur fiskur í kókosraspi með eplum og banönum, borinn fram með hnetusósu

Steiktur fiskur í kókosraspi með eplum og banönum, borinn fram með hnetusósu.

Björgu Þórsdóttur kynntist ég þegar hún lærði söng í Listaháskólanum. Hún er annáluð fyrir góðan mat og mataráhuga og við áttum það til að gleyma okkur í matarumræðum í skólanum. Einhverju sinni heyrðist á skrifstofunni „Hvað heitir aftur vinkona þín sem kemur svo oft og talar um mat við þig?” Þá var verið að tala um Björgu.
„Þegar ég var lítil var amma Dúa vön að steikja fisk í raspi og bera fram með steiktum eplum, lauk og banönum og svo fékk ég kokteilsósu með. Þetta þótti mér algjört lostæti, svo þegar maðurinn minn bað mig um fisk með eplum kviknaði hugmyndin að þessum rétti. Hún sameinar ást hans á kókos og mína á hnetusósu og nostalgían fylgir svo með.”

Í eftirrétt bauð Björg upp á Rabarbaraskyr með lakkrís 

#2017Gestabloggari9/52FISKURSKYR — RABARBARIBJÖRG ÞÓRSDÓTTIR

.

Björg þórsdóttir Albert
Björg þórsdóttir og Albert

Steiktur fiskur í kókosraspi með eplum og banönum, borinn fram með hnetusósu.

1)
1 kg þorskhnakkar (eða annar góður hvítur fiskur)

50g kókosflögur (muldar) eða kókosmjöl

Hveiti

Karrýblanda, t.d. frá Pottagöldrum

Salt og pipar

Smjör og olía til steikingar

2)
2 græn epli, skorin í bita

1-2 bananar, í sneiðum

2 skallottlaukar, smátt skorinn

vorlaukur

kóríander

kanell
…ef vill

Fiskinum velt upp úr blöndu af kókosmulningi, hveiti og karrý. Steikt upp úr smjöri og olíu í 2-3 mínútur á hvorri hlið og kryddað með salti og pipar. Sett í eldfast mót og sett í heitan ofn á meðan epli og bananar eru steikt.
Pannan hreinsuð að mestu (en ekki þvegin). Epli og skallottlaukur steikt úr vænni smjörklípu þar til þau fara að taka lit, en þá er banönum bætt við. Gott er að krydda með smávegis kanel og að lokum er vorlauk og kóríander bætt við (ef vill). Saltað og piprað.

Steiktur fiskur í kókosraspi með eplum og banönum, borinn fram með hnetusósu

Hnetusósa

2 – 3 vænar matskeiðar hnetusmjör

1 dl soðið vatn

5 cm bútur engifer

2 hvítlauksrif

sirka hálft chilli, eða chilli flögur

ca 1 tsk sesamolía

ca 1 tsk eplaedik

salt og pipar

Setjið allt í skál og maukið með töfrasprota. Smakkið til með sesamolíu og eplaediki, salti og pipar. Einhverjum gæti þótt gott að sæta með hunangi, en mér finnst það óþarfi. 
Mjög gott er að nýta það sem eftir er í hnetusmjörskrukkunni með því að hella soðnu vatni í krukkuna og hrista vel.

Fiskurinn borinn fram með ofnbökuðum kartöflum og fersku salati.

#2017Gestabloggari9/52FISKURSKYR — RABARBARIBJÖRG ÞÓRSDÓTTIR

— STEIKTUR FISKUR Í KÓKOSRASPI —

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Er matarboð framundan? Sex atriði sem gott er að hafa í huga

Borðsiðir og kurteisi taka breytingum með tímanum en hin almenna regla ekki; að taka tillit til annarra. Borðsiðir eru mikilvægir til þess að öllum líði vel hvort sem um er að ræða matarboð í heimahúsi eða málsverð á veitingahúsi.

Létt og gott andrúmsloft eru undirstaða borðsiða, en að auki er ekki verra að hafa hin praktísku atriði á hreinu, svo sem eins og að halda á glasi, hnífapörum og þess háttar, en það kemur samt aldrei í staðinn fyrir aðalatriðið, þ.e. hlýlegt og skemmtilegt andrúmsloft. Hér verður fjallað um praktísku hliðina, það veitir visst öryggi að hafa þessi atriði á hreinu, þau eru einföld, en eins og í öllu öðru, skapar æfingin meistarann.

SaveSave

SaveSave

SaveSave

Matarborgin Búdapest – framhald

BÚDAPEST. Það segir þó nokkuð um borg/land ef maður fer þangað tvisvar á sama árinu. Sléttum sex mánuðum eftir að við fórum til Búdapest var haldið aftur þangað á vegum Heimsferða. Að þessu sinni fórum við Bergþór með hóp út að borða og annan í matargönguferð um miðborgina. Ótrúlega fjölbreytt matarborg sem kemur endalaust á óvart.

Frk. Appelsína

IMG_3860

Frk. Appelsína. Þessar undurgóðu smákökur minnti dómnefndina í smákökusamkeppni Kornax á jólin, appelínu og kanilbragðið kom vel í gegn og heillaði okkur svo að Frk.Appelsína lenti í fjórða sæti. Stökkar og bragðgóðar smákökur sem laumast má í alla aðventuna og líka yfir hátíðirnar.