Tveimur mánuðum eftir að ég fór á fyrsta fundinn með Elísabetu Reynisdóttur næringarfræðingi hefur margt gerst og margt verið prófað. Fyrsta skrefið var að fara yfir matarsöguna í grófum dráttum frá barnæsku, matartengt hegðunarmynstur og halda matardagbók. Síðan brettum við upp ermar; ostur var tekinn úr, cayennepipars,-sítrónu,- og ólífuolíudrykkur daglega, kolvetni minnkuð og seinna fóru þau alveg út. Allt þetta er mjög hressandi og vel þess virði að prófa. Myndbandið er samantekt eftir fyrstu tvo mánuðina.
Núna vorum við á fundi með Lukku í Happi og næstu vikurnar ætlum við að þiggja ráðleggingar hennar og góðan mat og fara á Clean Gut fæði (án glútens, sykurs og mjólkurvara).
Að tengja næringu og líðan ásamt því að skilja af hverju sumt sem var að hrjá mig hefur lagast gerir mig mun meðvitaðri um hvernig ég vil hafa áframhaldið. Markmiðið er ekki að verða 125 ára heldur að líða vel og lifa góðu lífi núna og það sem ég á eftir.
Það ættu allir að fara reglulega til næringarfræðings til að fylgjast með og fá ráð hvort hægt er að gera betur með það fyrir augum að lifa betra lífi.