Bessastaðaterta frá forsetatíð Kristjáns og Halldóru Eldjárn

forseti kristján halldóra bessastaðir Bessastaðaterta frá forsetatíð Kristjáns og Halldóru Eldjárn Bergþór Vilborg Eiríksdóttir og Sigrún Pétursdóttir í eldhúsinu á Bessastöðum Marengs Albert Vilborg Eiríksdóttir Bessastaðir Kristján Eldjárn Sigrún Pétursdóttir terta Halldóra forseti
Bessastaðaterta frá forsetatíð Kristjáns og Halldóru

Bessastaðaterta frá forsetatíð Kristjáns og Halldóru Eldjárn

Vilborg systir mín var aðstoðarráðskona á forsetasetrinu síðasta ár Kristjáns Eldjárns í embætti og vann þar fyrstu mánuði Vigdísar. Ég fór einu sinni í heimsókn þegar hún var að vinna á Bessastöðum og mér fannst þetta eins og höll – þarna var ég ekki orðinn táningur. Held það sé í lagi að segja frá því núna að ég svalaði forvitni minni vel með því að skoða allt húsið hátt og lágt og naut þess í botn. Man eftir að hafa farið í vínkjallarann undir eldhúsinu, niður þröngan stiga, þar sem  einu sinni var fangelsi. Í kjallaranum voru rimlar fyrir litlu gluggunum og metersþykkir veggir (eins og allstaðar í húsinu) og svo mátti enn sjá hlekki í útveggnum. Í eldhúsinu man ég að voru stórar tréskúffur með mat í, ein var full af rúsínum….

#2017Gestabloggari 46/52BESSASTAÐIRVILBORG EIRÍKSDMARENGSTERTURKAFFIMEÐLÆTIDÍSUDRAUMUR

.

Vilborg, Sigrún, Halldóra og Kristján
Sigrún og Vilborg í eldhúsinu á Bessastöðum

Sigrún Pétursdóttir var ráðskona á forsetasetrinu alla forsetatíð Kristjáns. Til er frásögn af fyrsta kaffiboðinu á Bessastöðum eftir vígslu Kristjáns. Haldin var hátíðarmessa í Dómkirkjunni í tilefni vígslu nýs forseta. Við undirbúninginn á forsetasetrinu var gert ráð fyrir að 50-70 manns kæmu í þangað eftir messuna. Þegar messan hófst var ljóst að helmingi fleiri voru mættir og mundu mæta í kaffisamsætið. Til að gera langa sögu stutta þá fengu allir gestirnir kaffi og með því en auðvelt er að ímynda sér stressið sem var á Bessastöðum þennan dag.

Sigrún bakaði þessa hátíðlegu tertu við sérstök tilefni, sennilega þegar tigna gesti bar að garði.

Systkinin Albert og Vilborg

Bessastaðaterta frá forsetatíð Kristjáns og Halldóru Eldjárn. Ath. stór hátíðarterta!

Svampbotn:

4 egg
2 dl sykur
1 ½ dl hveiti
½ dl kartöflumjöl
½ tsk lyftiduft

Egg og sykur þeytt létt og ljóst, restin sett útí. Bakað í stóru móti (34 cm) 175-200°C í 10-15 mín.

Brúnt krem:

3 eggjarauður
2 msk sykur
100 g súkkulaði, brætt og kælt og hrært í á meðan.
1 peli (2 ½ dl) þeyttur rjómi

Rauður og sykur þeytt mjög vel þar til létt og ljóst. Bráðnu súkkulaði er hellt gætilega útí. Eggjasósu og þeyttum rjóma er svo blandað gætilega saman.

Marengsbotn:

250 g sykur
5 eggjahvítur
1 ½ tsk lyftiduft

þeytt mjög vel og bakað við 130 °C í 60 mín

Þeyttur rjómi (3-4 dl svo hann nái að þekja marengsinn vel)

Krem yfir:

3 eggjarauður
1 msk sykur
50 g súkkulaði
1 msk þeyttur rjómi

Samsetning:

Kremi (nr2) er smurt á tertubotninn.

Marengsinn settur þar ofan á og yfir hann er smurt lagi af þeyttum rjóma (gert daginn áður).

Að lokum er krem (nr 5) sett ofan á rjómann.

Á hliðar tertunnar er sprautað þeyttum rjóma. Þar að auki má auðvitað skreyta að vild.

.

Auður Aðalsteinsdóttir

Bessastaðaterta Dísudraumur
Bessastaðaterta frá forsetatíð Kristjáns og Halldóru Eldjárn.

DÍSUDRAUMUR#2017Gestabloggari 46/52BESSASTAÐIRVILBORG EIRÍKSDMARENGSTERTURKAFFIMEÐLÆTI

BESSASTAÐATERTAN

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vorgleði Petrínu Rósar – ala patarí Fransí

Vorgleði Petrínu Rósar. „Það færi best á að kalla þetta vorgleði með skemmtilegu fólki. Þetta eru allt frekar fljótlegar uppskriftir en á móti kemur að ferskleiki hráefnisins skiptir höfuðmáli. Sérsniðinn matseðill fyrir kvennaboð" segir Petrína Rós Karlsdóttir.                   Frá vinstri Hildur Bjarnason, Petrina Rós, Addý /Ásgerður Einarsdóttir, Guðný Margrét Emilsdóttir, Albert Eiríksson og Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir sem tók myndina.

Bláberjaostaterta

Screen Shot 2014-05-20 at 15.09.41

 Bláberjaostaterta. Kjörin terta með sunnudagskaffinu. Nú skulum við taka höndum saman og minnka enn frekar sykur í öllum mat, ekki síst í tertum (já og sniðganga dísætan mat of fleira þess háttar í búðum). Ef eitthvað er þá bragðast matur betur með minni sykri, munið að við erum ábyrg á eigin heilsu.

Mígreni hætti með breyttu mataræði

heilsuhusid

 

 

 

Mígreni hætti með breyttu mataræði. Á síðu Heilsuhússins er pistill Hönnu Guðmundsdóttur, þar segir hún frá því hvernig hún losaði sig við mígreniköst með breyttu mataræði.