Ítalskt tómatasalat
Hollt og gott tómatasalat eins og þetta passar með flestum réttum, já ef ekki bara öllum. Það er ágætt að láta salatið standa í um klukkustund áður en það er borið fram.
— ÍTALÍA — SALÖT — TÓMATASALÖT — TÓMATAR —
.
Ítalskt tómatasalat
400 g litlir tómatar
1 rauðlaukur, saxaður smátt
1 b ferskt basil, saxað
2 msk ólívuolía
1 msk rauðvínsedik
smá salt
Sneiðið tómatana niður í báta eða sneiðar. Blandið lauk og basil yfir. Blandið saman olíu og ediki og hellið yfir. Blandið saman
Stráið salti yfir
— ÍTALÍA — SALÖT — TÓMATASALÖT — TÓMATAR —
.