Þvoið gluggana í næsta vatnsveðri – besta húsráðið

Þvoið gluggana í næsta vatnsveðri - gluggaþvottur hreinir gluggar besta húsráðið Þvoið gluggana í næsta vatnsveðri. Besta húsráðið við óhreinum gluggum er að þvo þá næst þegar rignir hressilega. Rigningin sér um að bleyta upp óhreinindin og skolar ryk, salt og önnur óhreinindi af húsinu. Munið bara næst þegar gerir úrhelli: þrífið glerið með mildu sápuvatn og skafið það á eftir með þar til gerðri sköfu. Þetta er bæði hressandi og svo kemur árangurinn kemur strax í ljós. húsráð úrhelli hellirigning hvað er hægt að gera í rigningu
Þvoið gluggana í næsta vatnsveðri – besta húsráðið

Þvoið gluggana í næsta vatnsveðri

Besta húsráðið við óhreinum gluggum er að þvo þá næst þegar rignir hressilega. Rigningin sér um að bleyta upp óhreinindin og skolar ryk, salt og önnur óhreinindi af húsinu. Munið bara næst þegar gerir úrhelli: þrífið glerið með mildu sápuvatn og skafið það á eftir með þar til gerðri sköfu. Þetta er bæði hressandi og svo kemur árangurinn kemur strax í ljós.

.

ÝMISLEGTÞVOTTURHÚSRÁÐSÚKKULAÐITERTUR

.

Þvoið gluggana í næsta vatnsveðri - besta húsráðið
Hreinir gluggar

🌧

— ÞVOUM GLUGGANA Í NÆSTA VATNSVEÐRI —

🌧🌧

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.