Sítrónuostakaka Jónu
Sítrónuostakaka var hluti af glæsilegu kaffiboði Jónu Matthildar Borðið svignaði undan kaffimeðlætinu
— OSTAKÖKUR — SÍTRÓNUR — JÓNA MATTHILDUR —
.
Sítrónuostakaka Jónu
Botn:
½ pakki LU karamellu og kanil
½ pakki haust hafrakex
6 hraun bitar
1 msk sykur
50 gr smjör brætt
Allt sett í mixer og síðan þrýst niður í 26-8 cm smelluform bakað á 210°C í 7 mín kælið
Fylling:
400 gr rjómaostur
500 gr rjómi
1 dl sykur
2 dl mjólk
Safi úr ½ sítrónu
2 tsk vaniludropar
1 pakki sítrónuhlaup Royal +1 bolli soðið vatn og ½ bolli kalt
8 matarlímsblöð
Rjómi þeyttur og settur til hliðar
Rjómaostur, sykur þeytt saman mjólk, vaniludropar og sítrónusafi sett út í
Matarlímið lagt í kalt vatn í nokrar mínóutu
Sitrónuhlaupið sett í skál og 1 bolli soðið vatn helt yfir og hrært vel matarlímsblöð undin upp úr kalda vatninu og sett út í hrært vel með gafli þar til allt er vel tært og engir þræðir þá er settur ½ bolli kalt vatn og hrært varlega saman við ostablönduna síðan er rjómin hrærður saman við með sleif og helt yfir botnin kælt i 2 -10 tima.
Hlaup:
Sítrónuhlaup Royal 1 pakki +1 bolli soðið vatn og ½ bolli kalt
Sitrónuhlaupið sett í skál og 1 bolli soðið vatn helt yfir og hrært vel ½-1 bolli kalt vatn sett út í helt ofan á fyllinguna nota matskeið og hella í hana svo fylling skemmist ekki.
Sykruð sítróna skraut ekki nauðsyn
2 bollar sykur
1 bolli vatn
4-5 Sítrónur aðeins börkur þvegnar mjög vel
Sykur og vatn soðið í síróp ca 30 mín setja dropa á disk til að sjá hvort hann haldist til að vita hvort sírópið se tilbúið lækka hitan og vera búin að þvo og rífa börkin af sítrónunum passa að hvíta komi ekki með þvi þá stífnar börkurin síður setjið börkin ekki allan í einu og mótið eða leikið ykkur með börkin og látið kólna á smjörpappír
Glæsilegt kaffiboð Jónu Matthildar Frá vinstri: Þórkatla, Aðalheiður, Ólöf, Jóna Matthildur, Halldóra (Dóra), Braghildur og Stella.
—
— OSTAKÖKUR — SÍTRÓNUR — JÓNA MATTHILDUR —
.