
Gratinerað blómkál
Blómkál er herramannsmatur, það er fitusnautt og meinhollt. það inniheldur heil ósköp af vítamínum, en þó aðallega C vítamín. Munið bara að tyggja vel ef þið borðið blómkálið hrátt. Bæði hef ég borðað gratinerað blómkál sem sér rétt og svo var það meðlæti með margrómuðu grilluðu lambalæri Kjartans á dögunum. Uppskriftin kemur frá Sólrúnu, móður Kjartans (ekki bara uppskriftin, hún eldaði réttinn).
— SÓLRÚN — KJARTAN ÖRN — BLÓMKÁL —
.
Gratinerað blómkál
Eitt vænt blómkálshöfuð
Uppbakaður jafningur:
100 g smjör
hveiti til að þykkja
grænmetisteningur
soð af blómkálinu
salt, pipar,
1/2- 1 tsk múskat
mjólk (ég nota ekki mikla mjólk)
1 b feitur ostur – rifinn.
Sjóðið blómkálið í saltvatni í ca 15. mín, takið uppúr soðinu og setjið í eldfast form.
Bræðið smjör í potti, bætið út í hveiti og hrærið vel saman. Setjið út í soð og mjólk, krydd og að lokum helmningnum af rifna ostinum.
Hellið jafningnum yfir blómkálið og stráið restinni af rifina ostinum yfir. Bakið i 175° heitum ofni þar til það lítur vel út 🙂
Blómkálið gratineraða var borið fram með margrómuðu lambalæri Kjartans.
.
.
Auglýsing