Stanisław August síðasti konungur Póllands
Síðasti konungur Póllands hét Stanisław August Poniatowski, en hann ríkti frá 1764-1795. Í Varsjá heimsóttum við sumarhöllina hans, Łazienki höllina sem er í stórum fallegum almenningsgarði. Stanislaw þessi var vel sigldur, áður en hann varð konungur dvaldi hann í nokkrum löndum í V-Evrópu og líka í austrinu.
Hver morgunn hófst með tveggja tíma athöfn þar sem konungurinn var rakaður, klæddur (samkvæmt franskri tísku þess tíma), púðraður og hárið greitt eftir kúnstarinnar reglum af tveimur hárgreiðslumönnum. Það þurfti að krulla og setja slaufu í hárið og eitthvað fleira. Á meðan á þessu stóð var lesið úr nýjustu blöðunum fyrir hann.
🇵🇱
Stanisław konungur var mög vinnusamur, hann svaf í 7 tíma á hverri nóttu og aðalmáltíð dagsins var klukkan 4.
Alla fimmtudaga hélt Stanisław konungur veglegar veislur fyrir mektarfólk landsins. Í leiðsögn um sumarhöllina kom fram að fjórir borðsiðir séu komnir fá kónginum:
-Ekki nota hnífinn til að stanga úr tönnum
-Nota servíettur
-Taka olnboga af borðum
-Ekki setja skeið í skál eftir að hún hefur farið í munninn
— BORÐSIÐIR/KURTEISI — PÓLLAND — MATARBORGIR —
🇵🇱
🇵🇱
— BORÐSIÐIR/KURTEISI — PÓLLAND — MATARBORGIR —
— STANISTAW AUGUST SÍÐASTI KONUNGUR PÓLLANDS —
🇵🇱