
Uber-bílaleigur – hvernig þetta virkar og hvað ber að hafa í huga
Uber-bílaleiguþjónusta er leyfð í mörgum borgum og bæjum víða um heim. Í stuttu máli virkar hún þannig að notendur hlaða niður smáforriti, panta bíl í gegnum það og slá inn áfangastað áður en ferð hefst. Í appinu má sjá hvaða bílar eru lausir í nágrenninu og fylgjast með því í rauntíma hvar bíllinn er og eftir hversu margar mínútur hann er væntanlegur.
Þegar ferðinni lýkur fer greiðslan sjálfkrafa fram í gegnum appið (greiðslukort er tengt við notandareikninginn í upphafi). Að lokinni ferð er farþeganum boðið að gefa bílstjóranum stjörnugjöf – frá einni upp í fimm – skrifa umsögn og, ef vilji er til, bæta við þjórfé. Allt fer þetta fram innan appsins.
— KURTEISISFÆRSLUR — ÞJÓRFÉ —
.
Um þjórfé og stjörnugjöf
Þjórfé er víða á undanhaldi í hinum vestræna heimi. Þó er sjálfsagt að sýna sérstaklega liprum og þjónustulunduðum bílstjórum þakklæti, til dæmis þeim sem veita gagnlegar upplýsingar að beiðni farþega. Sé hins vegar um hefðbundinn akstur frá einum stað til annars að ræða, er fullkomlega í lagi að sleppa þjórfé.
Almenna reglan hjá mörgum er einföld:
Alltaf fimm stjörnur – nema auðvitað eitthvað hafi farið verulega úrskeiðis. Til dæmis ef bílstjórinn er ókurteis, hangir í símanum, spilar tónlist of hátt eða angrar farþega á annan hátt.
Hegðun í bílnum
Best er að sleppa því að borða eða drekka í bílnum. Einnig er gott að hafa í huga að bílstjórar geta gefið farþegum stjörnugjöf og umsagnir – svo það borgar sig að haga sér vel.
Þegar ferð er aflýst
Það kemur fyrir að bílstjóri hættir við ferð eftir að hafa lagt af stað. Í slíkum tilvikum rukkar Uber stundum lágmarksupphæð. Þetta er ekki til fyrirmyndar. Ég hef sjálfur nokkrum sinnum lent í þessu og þá gert athugasemd í appinu – og í öllum tilvikum fengið endurgreitt.


— KURTEISISFÆRSLUR — ÞJÓRFÉ —
.



Sérð þú um veizlur?
Comments are closed.