Jólahlaðborð á Hótel Glym

María Sigurðardóttir, hvalfjörður hótel glymur margrét rósa magga rósa Þórhildur Helga Þorleifsdóttir kolfreyjustaður, Albert og Katla Lárusdóttir Hótel Glymur jólahlaðbor magga rósa margrét rósa edda björgvins björgvin franz
María Sigurðardóttir, Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, Albert og Katla Lárusdóttir

Jólahlaðborð á Hótel Glym

Við Þórhildur Helga brugðum okkur á jólahlaðborð Hótel Glym í Hvalfirði. Margrét Rósa hótelstjóri og hennar fólk höfðu lagt fallega á borð og skreytt veitingasalinn afar smekklega. Á hlaðborðið báru þau fram fjöldann allan af góðum réttum – þeir voru hver öðrum betri. Því miður gleymdi ég að taka myndir af aðalréttunum og líka af koníaksbættu rjómalöguðu villisveppasúpunni sem við byrjuðum á. Mæðginin Edda Björgvins og Björgvin Franz fóru á kostum og skemmtu gestum með söng og glensi. Frábær kvöldstund í notalegu og afslöppuðu umhverfi.

HÓTEL GLYMURMARGRÉT RÓSA HVALFJÖRÐURJÓLAHLAÐBORÐJÓLINEDDA BJÖRGVINS

.

Albert, Margrét Rósa Einarsdóttir og Þórhildur Helga með afar góðan jólakoktel sem innihélt vodka Malibu kókosmjólk sódavatn og granatepli
Hreindýrapate með rifsberjahlaupi
Bleikjupaté var borið fram með kryddjurtasósu
Grafinn lax var borinn fram með kampavíns-sinnepssósu
Fjölmargir síldarréttir voru á forréttaborðinu – hver öðrum betri
Kalt hangikjöt
Riz à l’amande með kirsuberjasósu, frönsk súkkulaðiterta, sérry triffle, Pavlova með ferskum berjum og heimabakaðar smákökur

Koniaksbætt rjómalöguð villisveppasúpa við upphaf borðhalds
Rúgbrauð, laufabrauð og flatbrauð og smjör.
Sherrybætt tómatsíld
Karrýsíld með eplum.
Marineruð síld með kúmeni og Íslensku brennivíni
Grafinn lax með kampavíns-sinnepssósa
Andalifrakæfa með bláberjamauki,
Hreindýrapate með rifsberjahlaupi
Bleikjupaté með kryddjurtasósu
Aðalréttir:
Ferskt salat með gráðosti og valhnetum.
Kalt hangikjöt,kartöflur í uppstúf ,rauðkál, grænar baunir
Sykurgljáður hamborgahryggur,
Heitir réttir:
Heilsteikt nautalund, purusteik og hunangsgljáð kalkúnabringa
Waldorfsalat,rauðvínssósa, sykurbrúnaðar kartöflur, Bernaiessesósa og gratinkartöflur.
Eftirréttir:
Riz à l’amande með kirsuberjasósu
Frönsk súkkulaðiterta
Sérrí triffle
Pavlova með ferskum berjum og
Heimabakaðar smákökur.

HÓTEL GLYMURMARGRÉT RÓSA HVALFJÖRÐURJÓLAHLAÐBORÐJÓLINEDDA BJÖRGVINS

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Síðdegiskaffi hjá Ólöfu og Ásgeiri

Síðdegiskaffi hjá Ólöfu og Ásgeiri. Ólöf frænka mín Jónsdóttir bauð í síðdegiskaffi og naut aðstoð við undirbúninginn frá Ásgeiri eiginmanni sínum. Það var sannkallað hlaðborð hjá þeim hjónum með döðlutertu, grænmetisböku, silungasalati og ýmsu fleira góðgæti. Varla þarf að taka fram að við gestirnir tókum hraustlega til matar okkar. Olla er heimilisfærðikennari í Keflavík og er nýbúin að gefa út stórfínar matreiðslubækur ætlaðar yngstu stigum grunnskóla.

Apríkósuchutney

Apríkósuchutney 

Apríkósuchutney. Með ostum og kexi er ágætt að hafa apríkósuchutney í staðinn fyrir vínber - eða hafa vinberin líka. Chutneyið er kjörið með kjötréttum og indverskum mat