Gleðileg jól

Albert og Bergþór pálsson í Salnum. Carola ida köhler diddú sólrún björnsdóttir steindór heiði Bragi bergþórsson páll bergþórsson salurinn jól gleðileg jól
Albert og Bergþór í Salnum. Mynd Bragi

Gleðileg jól

Við óskum ykkur gleðilegra jóla og alls hins besta á nýju ári, kæru Íslendingar. Megi gæfusól ykkar skína sem skærast, með því til dæmis að hrista upp í rútínunni, gera lífið meira spennandi og lifa lífinu lifandi! Alúðarþakkir fyrir samfylgdina á árinu.

BERGÞÓR —

MUNIÐ: Þann 27. desember verður dregið úr réttum svörum í gjafaleiknum: VINSÆLUSTU UPPSKRIFTIRNAR Á ALBERT ELDAR – endilega takið þátt með því að smella HÉR

Í fréttum ársins er þetta helst:

Nýr vefur fór í loftið í febrúar með margföldun á innlitum

-Fórum árlegan JÓLARÚNT með smá glaðning til nokkurra vina

-slógum öll met með því að fara í fimmtán veislur á sex dögum

-upplifðum matarmenningu nokkurra borga.

Íslenskar færslur voru sérmerktar

Jólauppskriftir sérmerktar

-Enn fleiri borðsiðafærslur litu dagsins ljós

-Nú er hægt að fá gjafabréf á borðsiðanámskeið og viðskiptamálsverði

-þriggja ára ánægjulegu samstarfi við Húsfreyjuna lauk

-og ég smakkaði ótrúlega vonda tertu

Svo kemur nýtt ár….  Hvern hefur ekki langað til að setja sér markmið, en byrjað um leið að búa sér til afsakanir stórar og smáar … kannski finnst öðrum það bara della … best að finna annan betri tíma …
Þannig erum við sjálf oft helsti þröskuldurinn. Látum okkur dreyma og eltum draumana, munið að draumar rætast. Áramót geta verið vel til þess fallin að hefjast handa, ef okkur sýnist svo. Ég þori, get og vil! Ég er það sem ég hugsa!

Þessi atriði eru dæmigerð um áramót, en geta átt við hvenær sem er:

  • Finnum eldmóðinn og viðhöldum honum
  • Sinnum áhugamálum
  • Styrkjum tengslanet
  • Viðhöldum og eflum samband við fólk sem hefur góð áhrif á okkur
  • Uppgötvum eigin hæfni og vinnum með hana.

Við getum allt sem við viljum.
Gangi okkur vel og takk fyrir að lesa.

Bragi myndasmiður

Hér er neðan eru nokkrar myndir frá JÓLARÚNTINUM

Sólrún og Steindór afhendu Páli blóm í þakklætisskyni fyrir vísuna. Hann sagði að bragði að þetta væri í fyrsta skipti sem hann hefði hlotið bókmenntaverðlaun. 😀
Diddú hellir kaffi í bolla Páls, með kaffinu fengum við Sörur
Vilborg bauð upp á rúgbrauðssnittur með jólakæfu
Signý var að undirbúa veislu fyrir stór-fjölskylduna
Páll, Baldur, Þórhildur, Þóra Fríða og Bergþór
Árdís og Birkir buðu upp á heitreykta gæs, ítalska pylsu, grafna gæs og fleira góðgæti
Heimir með hundinn Kappa og Bergþór
Morgunkaffi hjá Bergdísi
Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.

Fyrri færsla
Næsta færsla